Inga Sæ­land reið út í Lilju: „Sama gamla spillingar­kerfið blómstrar hér sem aldrei fyrr“

Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, er búin að fá nóg af sér­hags­muna­gæslunni í ís­lenskri pólitík. Inga gerir ný­legan úr­skurð kæru­nefndar jafn­réttis­mála að um­tals­efni en nefndin komst ný­lega að þeirri niður­stöðu að Lilja Al­freðs­dóttir mennta­mála­ráð­herra hefði brotið lög þegar hún skipaði flokks­bróður sinn, Pál Magnús­son, í em­bætti ráðu­neytis­stjóra í mennta­mála­ráðu­neytinu.

Inga sendir á­kall til Katrínar Jakobs­dóttur á Face­book-síðu sinni og spyr hvort hún ætli að láta það líðast að mennta­mála­ráð­herra í hennar ríkis­stjórn brjóti jafn­réttis­lög. Bendir Inga á að Katrín sé for­maður flokks sem hefur viljað kenna sig við jafn­rétti og femín­isma.

„Hve­nær hættir maður að verða hissa á sér­hags­muna­gæslunni í pólitík? Svarið er ein­falt: ALDREI! Fram­sóknar­maður ráðinn ráðu­neytis­stjóri af Fram­sóknar­ráð­herranum sem talinn er hafa brotið jafn­réttis­lög með ráðningunni. Sig­ríður Á Ander­sen var látin taka pokann sinn úr ráðu­neyti dóms­mála fyrir að hafa brotið lög varðandi ráðningar dómara við Lands­rétt. Hanna Birna þurfti líka að yfir­gefa sinn ráð­herra­stól vegna Leka­málsins svo­kallaða. Er ein­hver sýni­legur eðlis­munur á þessu máli um viður­kennt brot ráð­herra á jafn­réttis­lög­gjöfinni, sem gæti mögu­lega slegið skjald­borg um mennta­mála­ráð­herrann?“

Lilja Al­freðs­dóttir sagði í fréttum RÚV í dag að engu hefði skipt að Páll hefði tengsl í Fram­sóknar­flokkinn þegar hann var ráðinn. Þá mat hún það svo að Einar Hugi Bjarna­son, sem skipaður var for­maður fjöl­miðla­nefndar í nóvember, hefði verið hæfari en Hall­dóra Þor­steins­dóttir, lektor í lög­fræði við Há­skólann í Reykja­vík, og einn helsti sér­fræðingur landsins í fjöl­miðla­rétti. Sér­fræðingar í mennta­mála­ráðu­neytinu höfðu mælt með því að Hall­dóra yrði skipuð en bent hefur verið á að Einar Hugi hafi setið í fjöl­mörgum nefndum á vegum Fram­sóknar­flokksins.

Inga Sæ­land gefur lítið fyrir út­skýringar Lilju og telur að „gamla spillingar­kerfið“ sé enn við lýði á Ís­landi.

„Ráð­herrann í­trekar í við­talinu: Hæfasta fólkið ráðið, hæfasta fólkið ráðið, HÆFASTA FÓLKIÐ RÁÐIÐ... NEI Fram­sóknar­menn eru ráðnir af Fram­sóknar­ráð­herranum, það er ekki flóknara en það. Sama gamla spillingar­kerfið blómstrar hér sem aldrei fyrr. Fram­sóknar­maður ráðinn sem for­maður fjöl­miðla­nefndar þrátt fyrir að hæfari ein­stak­lingur hafi sótt um starfið. Sami for­maður fjöl­miðla­nefndar hefur skreytt stjórnar­for­mennsku 8 nefnda í boði Fram­sóknar­flokksins.“