Inga Sæland öll að koma til: „Ég heiti því að koma margefld til baka í haust“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur verið þó nokkuð mikið fjarverandi á yfirstandandi þingi vegna veikinda. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag kemur Inga aðeins inn á þessi veikindi sín.

„Að ferðast um fallega landið sitt, fylla lungun af hreinu tæru sjávarlofti og geta hlaupið út um allar koppagrundir óhindruð og frjáls er ekki sjálfsagt og ekki öllum gefið. Þúsundir og aftur þúsundir samlanda okkar búa við skerta heilsu, vanlíðan og fátækt. Sjálf hef ég glímt við heilsubrest, fötlun og fátækt og á því auðvelt með að setja mig í spor þeirra sem þannig er ástatt um, m.ö.o. ég veit um hvað ég er að tala,“ segir Inga en í grein sinni fjallar hún um baráttumál Flokks fólksins sem einkennast meðal annars af útrýmingu fátæktar.

„Þegar vanmátturinn og vonleysið tekur mann kverkataki er ekkert dýrmætara en að fá hjálp. En hver á að hjálpa? Liggur það ekki í augum uppi að við gerum þær kröfur til okkar siðmenntaða samfélags að það taki utan um alla þá sem eiga bágt og þurfa á hjálp að halda? Hvaða guðlegi máttur ætli stjórni því að fátækt barna á Íslandi hefur vaxið stig af stigi, að gjáin milli þeirra ríku og fátæku gliðnar stöðugt? Nei, það er rétt hjá þér. Það er enginn guðlegur máttur þar að baki, einungis vanhæf ríkisstjórn sem hugsar ekki um neitt nema eigið skinn, ráðherrastólana undir boruna á sér og hagsmunagæslu vildarvina. Þetta er mannanna verk!“

Inga lætur Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra fá það óþvegið og segir að hún hafi kinnroðalaust að það að láta fólk bíða eftir réttlætinu sé það sama og að neita því um réttlæti.

„Er furða þótt okkar minnstu bræður og systur spyrji sig að því hvernig það sé mögulegt að þessi sami einstaklingur, s.s hæstvirtur forsætisráðherra, sé æðstur allra ráðherra en á sama tíma skuli hún samþykkja að fátækir ekki einungis bíði eftir réttlætinu heldur séu skattlagðir í sárri fátækt og allt að 130% af framfærslu þeirra fari í að greiða húsaleigu! Það er m.a. vegna þess hvernig græðgisvædd leigufélög hafa fengið heimild til þess að níðast á þeim sem ekki eru taldir bærir til að fara í greiðslumat og kaupa sína eigin íbúð,“ segir Inga sem er full tilhlökkunar um að koma aftur til starfa þegar þing kemur saman í haust.