Inga Sæland mætti ekki í Kryddsíldina: Óttast að Þórdís Kolbrún væri smitandi

Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, sá sér ekki fært að mæta í Krydd­síldina á Stöð 2 af ótta við að hún myndi smitast af kórónu­veirunni frá Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, utan­ríkis- og þróunar­sam­vinnu­ráð­herra.

Þetta kom fram í upp­hafi Krydd­síldarinnar sem fram fer á gaml­árs­dag á hverju ári. Þar mætast leið­togar þeirra stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Al­þingi, en eins og kunnugt er hefur Co­vid-19 haft mikil á­hrif á lands­menn undan­farna daga. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæðis­flokksins, er í ein­angrun en Þór­dís Kol­brún mætti í hans stað eftir að hafa losnað úr ein­angrun í gær. Í upphafi þáttar kom fram að Inga óttaðist að Þórdís gæti borið með sér smit þrátt fyrir að Þórdís væri ekki lengur í einangrun.

Í sam­tali við Vísi segir Inga að þátt­taka Þór­dísar Kol­brúnar í þættinum hafi haft nokkuð með á­kvörðun hennar að gera. Inga benti einnig á að mikill fjöldi smita í sam­fé­laginu spiluðu inn í á­kvörðun hennar en eins og fram hefur komið greindust hátt í 1.600 smit hér á landi í gær. Eigin­maður Ingu er með undir­liggjandi sjúk­dóm og má illa við því að fá Co­vid-19. Inga kvaðst hafa boðið öðrum þingmönnum flokksins að mæta í hennar stað en afstaða þeirra hafi verið sú sama.

Þór­dís sagði í upp­hafi þáttarins í dag að henni þætti leitt að Inga hefði ekki séð sér fært að mæta. Það væri skemmti­legra að hafa hana með. Þór­dís sagðist þó skilja það að fólk tæki á­kvarðanir út frá sínum for­sendum.