Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, skellti sér í bólusetningu í morgun ásamt móður sinni, Sigríði Sæland. Um var að ræða annan skammtinn af bóluefni Pfizer og eru þær mæðgur nú fullbólusettar.
Ef marka má myndband sem Inga birti á Facebook-síðu sinni í morgun voru þær hinar glöðustu fyrir utan Laugardalshöll eftir bólusetninguna og hrósuðu þær meðal annars skipulaginu. Inga var þó í örlitum vandræðum með tæknina því hún sneri myndavélinni að sjálfri í stutta stund í viðtalinu.
Þær sendu svo fallega kveðju til fylgjenda Ingu á Facebook, en hún býr sig nú á fullu undir komandi kosningar. Ljóst er að það er verk að vinna fyrir formann Flokks fólksins og hennar fólk enda flokkurinn á barmi þess að detta út af þingi ef marka má nýjustu skoðanakannanir.
Þessa skemmtilegu kveðju þeirra mæðgna má sjá hér að neðan: