Inga Sæland hrærð eftir daginn: „Jólabónusinn er í höfn“

Inga Sæland, formaður Flokks flokksins, var hrærð í kvöld eftir að í ljós kom að samstaða náðist í fjárlaganefnd um tillögu stjórnarandstöðunnar að greiða öryrkjum 53 þúsund króna aukagreiðslu skattfrjáls og skerðingarlaust.

„Það er ómetanlegt, hvað röddin okkar í Flokki fólksins er að gera fyrir alla þá sem við erum málsvarar fyrir. Það er sannarlega þakkarvert að ríkisstjórnin skuli hafa séð ljósið og barátta okkar er að skila árangri. Jólabónusinn er í höfn fyrir ykkur elsku öryrkjar og við í Flokki fólksins munum einnig mæla fyrir sambærilegum jólabónus fyrir tvær neðstu tekjutíundir eldra fólks. Fólkið fyrst svo allt hitt. Gleðileg jól,“ segir Inga Sæland á Facebook-síðu sinni í kvöld.

Þingflokkar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar fögnuðu því innilega í kvöld að samstaða hafi náðst um greiðsluna.

„Stjórnarandstaðan hefur undanfarið barist fyrir því að ríkisstjórnin greiði öryrkjum eingreiðslu líkt og gert var fyrir síðustu jól. Í síðustu viku lögðu fulltrúar flokkanna í fjárlaganefnd fram breytingartillögu við fjáraukalög þess efnis. Það eru því gleðitíðindi að stjórnarmeirihlutinn hafi loks fallist á tillögu stjórnarandstöðunnar og að fjárlaganefnd standi að baki slíkri tillögu,“ segir í tilkynningu sem Samfylkingin, Flokkur fólksins, Píratar og Viðreisn sendu frá sér.