Inga Sæ­land auð­mjúk og hrósar mörgum: Þetta eru hetjur Ís­lands

„Við Ís­lendingar höfum svo sannar­lega sýnt að við getum öll gengið í takt þegar á reynir,“ segir Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, í pistli sínum í Morgun­blaðinu í dag. Þar skrifar Inga um Co­vid-far­aldurinn hér á landi, en hún hefur viðrað skoðanir sínar á að­gerðum yfir­valda eins og margir vita.

Í pistlinum er Inga auð­mjúk og segist hún vona að nú förum við að sigrast á kórón­veirunni. Sára­fá ný smit greinast nú dag­lega og hefur fækkað óðum dag frá degi,“ segir hún en bendir á að eftir sitji hin mikla efna­hags­lega ó­vissa.

Leggja sig í hættu

„Á meðan á öllu þessu hefur gengið hef ég hvern einasta dag hugsað með hlý­hug til þeirra sem standa í fremstu víg­línu við að halda uppi þeirri starf­semi sem þó hefur verið hægt að sinna í sam­fé­laginu. Ég vil nefna fólk í verslun, og sér­stak­lega þau sem hafa staðið vaktirnar við af­greiðslu á nauð­synja­vörum svo sem mat­vælum og lyfjum. Þau hafa sinnt störfum sínum af trú­mennsku og æðru­leysi. Þau hafa lagt sig í hættu.“

Inga skrifar ekki bara um fólk í verslunum heldur einnig þá sem starfa við ömunnun, til dæmis á sam­býlum fatlaðra og á dvalar- og hjúkrunar­heimilum.

„Allt þetta góða fólk er í flestum til­vikum illa launað og gegnir jafn­vel van­þakk­látum störfum. Við stöndum í djúpri þakkar­skuld við það allt. Vonandi lærum við að meta störf þess betur eftir þessa reynslu, skiljum að það gegnir lykil­hlut­verki í sam­fé­laginu. Ég beygi mig og í auð­mýkt gagn­vart heil­brigðis­starfs­fólkinu okkar. Bæði þeim sem hafa staðið í ná­víginu við um­önnun þeirra sem hafa sýkst af Co­vid-19 og einnig öllum hinum. Ég ber djúpa virðingu fyrir öllum þeirra störfum. Ef við ættum ein­hvern tímann að átta okkur á því hversu ó­metan­leg þau eru þá er það nú á slíkum ör­laga­stundum. Þau eru hetjur sem vinna verk sín að vanda og leggja líf sitt í sölurnar fyrir okkur hin. Hafa staðist mikla þrek­raun sem við getum aldrei full þakkað.“

Samstaða og sjálfsagi

Inga skrifar líka um ís­lensku þjóðina og er mjög á­nægð með það hvernig þjóðin hefur brugðist við í far­aldrinum.
„Síðan er það sjálf þjóðin, al­menningur í þessu landi. Við Ís­lendingar höfum svo sannar­lega sýnt að við getum öll gengið í takt þegar á reynir. Sýnt sam­stöðu og sjálf­saga. Ég veit að það reynir á þol­rifin að lifa í sótt­kví. Það er búið að vera að­dáunar­vert að fylgjast með því hvernig fólk hefur farið eftir ráð­gjöf og fyrir­mælum yfir­valda. Við erum öll í sama báti.“

inga nefnir í fram­hjá­hlaupi að hún hefði gjarnan viljað að stjórnar­and­staðan fengi meiri að­komu að stefnu­mótun í þeirri vinnu sem er fram undan. Nú sé ekki þó ekki tími fyrir pólitískt arga­þras, við verðum að róa öll í sömu átt.

„Góð og sam­hent frammi­staða fólksins í landinu á ef­laust stóran þátt í því að við erum búin að ná þeim árangri gegn veirunni sem raun ber vitni. Við þurfum þó að halda ár­vekni okkar, fara var­lega og þrauka að­eins lengur. Sumarið er handan við hornið, vonandi sól­ríkt og hlýtt. Tökum því opnum örmum. Verndum hvert annað og gleymum því ekki að kær­leikurinn kostar ekkert.“