Inga Sæland allt annað en sátt: Fölsuð vottorð til sölu á nokkra þúsundkalla

„Sannarlega mikil vonbrigði en þegar kemur að því að vernda líf og limi borgaranna þá er þessi ríkisstjórn hætt að koma á óvart,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.

Inga gerir nýjar sóttvarnarreglur sem taka gildi á morgun að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Með breytingunum verða meðal annars tekin gild bólusetningarvottorð og vottorð um fyrri COVID-19 sýkingu frá ferðamönnum utan Schengen-svæðisins.

Inga segir að Flokkur fólksins fordæmi þessari aðgerðir ríkisstjórnarinnar á landamærunum, ákvörðunin sé ekki einungis óskiljanleg heldur hreinlega vond. Verið sé að taka allt of mikla áhættu fyrir óljósan ávinning.

„Fyrst og fremst er verið að taka áhættuna á því að við séum að hleypa hér inn fjórðu bylgju faraldursins áður en við höfum bólusett þjóðina. Virkilega dapurt að þurfa að horfast í augu við að ríkisstjórnin hefur ekkert lært af fyrri afleiðingum faraldursins og þeim óafturkræfu hörmugum sem hann hefur þegar haft í för með sér. Það er ljós við enda gangnanna og við eigum að bíða róleg eftir að ná þangað.“

Inga segir það hafa sýnt sig að þau lönd sem hafa sýnt þolinmæði og varfærni í baráttunni við veiruna séu að koma best út úr faraldrinum. „Efnahagslega, heilsufarslega og samfélagslega,“ segir hún og bætir við að rökin með bóluefnaskírteinin haldi engu vatni, því miður.

Bendir hún á fréttir erlendra fjölmiðla þess efnis að fölsuð bóluefnavottorð séu í umferð, til dæmis í Ísrael. „Ofangreind frétt talar um að QR kóða kerfið sem notað var til að votta fyrir bólusetningu hafi ekki verið nægilega varið og að þúsundir manns hafi falsað slík vottorð. Á samfélagsmiðlasíðunni Telegram hafi yfir 100.000 manns farið inná hópsíður þar sem fölsk bóluefnavottorð séu til sölu,“ segir Inga sem deilir frétt Times of Israel sem fjallar um þetta.

Þá efist almenningur í Rússlandi um ágæti Spútnik-bóluefnisins og margir leiti á Telegram eftir fölsuðum vottorðum í stað þess að fara í sprautu. Þar sé hægt að nálgast fölsuð vottorð fyrir aðeins 25 dollara.

„Einnig er hægt að kaupa fölsuð mótefnavottorð og fölsk læknisvottorð sem veita undanþágu frá bólusetningu. Þessi verslun með fölsuð vottorð gengur greiðlega á meðan við höfum ekki komið upp miðlægu kerfi sem girðir fyrir slíkt,“ segir hún og vísar í frétt þess efnis að IATA, Alþjóðaflugmálastofnunin, hafi í hyggju að gefa út nýtt vottorðakerfi sem myndi draga úr hættunni á fölsuðum vottorðum. Það kerfi sé þó ekki komið í gagnið.