Inga gagnrýnir myndaval DV eftir skilnað: „Ég efast um að ég muni hössla mjög mikið út á þennan“
Inga Auðbjörg K. Straumland og þingmaðurinn fyrrverandi Helgi Hrafn Gunnarsson eru að skilja um þessar mundir. Inga tekur þessu þó með hinnu mestu ró og hendir i léttan brandara á Facebook yfir myndavali DV með frétt um skilnaðinn.
„Takk fyrir þetta myndaval, @RitstjornDV. Ég efast ekki um að ég muni hösla mjög mikið út á þennan sex ára gamla Hermione-búning,“ skrifar Inga.
Takk fyrir þetta myndaval, @RitstjornDV. Ég efast ekki um að ég muni hösla mjög mikið út á þennan sex ára gamla Hermione-búning. pic.twitter.com/4zJjIeANDG
— Inga Auðbjörg K. Straumland (@ingaausa) January 16, 2023
Birna Dís bendir Ingu á að þetta sé bara jákvætt fyrir hana. „Gaur sem fílar þig ekki í Hermione-búning er ekki sá rétti fyrir þig,“ skrifar Birna.
Ásta Lovísa bendir Ingu á að Mannlíf hafi splæst í samsetta mynd.
Mannlíf splæsti í samsetta mynd, brotið hjarta og velfarnaðaróskir. Mér finnst það lýsa meiri lífleika í æsifréttablaðamennsku ef ekkert annað. pic.twitter.com/VCONd9MPqy
— Ásta Lovísa (@la_fille_rousse) January 16, 2023