Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, opnaði sig um mjög persónuleg málefni í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Þar ræddi hún meðal annars um eiginmann sinn sem beðið hefur lengi eftir því að fá meina sinna bót.
„Virðulegi forseti, að bíða og bíða og bíða eftir að fá hjálp, vera á biðlista til að bíða eftir biðlista. Ég ætla að segja ykkur frá einhverju sem stendur mér mun nær, bara mjög nálægt mér,“ sagði Inga í ræðu sinni.
Áður hafði Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, stigið í pontu og hrósað heilbrigðiskerfinu. Vísaði hann meðal annars í könnun Gallup þar sem heilbrigðiskerfið fékk góða einkunn. „Það er ástæða til að fagna með því góða fólki sem ber uppi þjónustuna. Þau fá stóran plús í kladdann,“ sagði Ólafur.
Inga sagðist ekki kannast við þetta, þvert á móti.
„Ég get bara engan veginn komið auga á þetta. Þetta stendur mér það nálægt að ég er að velta því fyrir mér núna hversu lengi ég fá að hafa minn vaska, granna, flotta mann hjá mér. Mun hann lifa biðina af þegar meðalhjartsláttur hans er búin að vera 34–36 slög á mínútu í sennilega hálft annað ár,“ sagði Inga og bætti við að hann hefði gengið á milli „Pontíusar og Pílatusar“ undanfarin misseri.
Nýlega hafi hann fengið ákveðin svör en þá kæmi í ljós að aðeins er framkvæmd ein aðgerð á dag og til að komast í umrædda aðgerð þurfi að fara á biðlista – sem er í dag tvö ár.
„Hún er ein af þeim sem var ákveðið að skera niður núna í COVID í aðhaldsaðgerðunum í heilbrigðiskerfinu,“ sagði Inga sem gaf lítið fyrir það að þessar aðhaldsaðgerðir kæmu ekki niður á sjúklingunum sjálfum eins og haldið hefur verið fram.
„En það bitnar á sjúklingunum sjálfum. Ég er að spyrja mig hér í dag: Mun maðurinn minn lifa það af að þurfa að bíða og bíða og bíða eftir því að fá lækningu sinna meina?“