Inga Auðbjörg K. Straumland, formaður Siðmenntar félags siðrænna húmanista á Íslandi, lætur Agnesi M. Sigurðardóttir Biskup Íslands heyra það á samfélagsmiðlum.
Agnes sagði í jólapredikun sinni frá Grafarvogskirkju að „Guð birtist hér á jörð í barninu Jesú. Það er ekki vinsælt að nefna nafið hans í opinberri umræðu. Það hefur verið þöggun í gangi varðandi Guð kristinna manna. Spurt var hvort samhengi væri á milli vanlíðunar ungs fólks og þess að ekki mætti lengur fræða börnin um kristna trú í skólum landsins.“
Ummæli Agnesar hafa farið illa ofan í suma þar sem Þjóðkirkjunni nýtur ýmissa réttinda framar öðrum trúfélögum á Íslandi.
„Það er svo óviðeigandi að standa þarna, gulli skrýdd, á háum launum í boði þjóðarinnar, þar sem þú færð borgað fyrir að stunda trúboð á þinni trú, og spila sig sem eitthvað fórnarlamb. Það eina sem er að gerast er að fólk er farið að setja spurningarmerki við forréttindi þín,“ skrifar Inga.
„Forstjóri ríkisstofnunar sem fær tæplega 7 milljarða í styrki frá ríkinu og 80 klukkustundir af ókeypis áróðri í ríkisútvarpinu, kvartar yfir þöggun,“ bætir Inga við.
Það er svo óviðeigandi að standa þarna, gulli skrýdd, á háum launum í boði þjóðarinnar, þar sem þú færð borgað fyrir að stunda trúboð á þinni trú, og spila sig sem eitthvað fórnarlamb. Það eina sem er að gerast er að fólk er farið að setja spurningarmerki við forréttindi þín. https://t.co/lpcn6QQeXI pic.twitter.com/qKD3dlqULs
— Inga Auðbjörg K. Straumland (@ingaausa) December 25, 2022