Inga fengið nóg: „Maður rétt getur ímyndað sér hvað annað þrífst þarna“

„Ástandið hérna er orðið þannig að ég skammast mín fyrir umhverfið,“ segir Inga Ingólfsdóttir, íbúi á Óðinsgötu, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Blaðið greinir frá því að íbúar við götuna segi ástand við hús númer 14a og 14b vera óviðunandi. Eru húsin í algjörri niðurníðslu og hafa verið það í mörg ár.

Í frétt blaðsins kemur fram að húsin hafi verið umsjónarlaus síðan árið 2018. Mikil órækt og drasl sé á lóðum þeirra og þau ekki mannheld. Inga segir að þangað leiti fólk reglulega skjóls ásamt því að unglingar haldi þar til.

Núverandi eigandi húsanna er félagið Erkiengill ehf. og hefur dagsektum verið beitt á þá sem nema um 100 þúsund krónum á dag.

„Ég veigra mér við því að fólk komi í heimsókn eða að dóttir mín komi með vini sína heim,“ segir Inga og bætir við að vesenið hafi verið mikið.

„Óværan og viðbjóðurinn af óræktinni í garðinum er mjög mikil, svo mikil að leigjendurnir mínir þurftu að setja skordýranet í alla glugga þar sem þau voru á jarðhæð og það er allt í flugum og köngulóm og maður rétt getur ímyndað sér hvað annað þrífst þarna,“ segir hún.

Í Fréttablaðinu kemur fram að leigjendur sem bjuggu á neðri hæðinni hafi nýlega flutt út og hefur hún nú fengið leyfi fyrir Airbnb-leigu. „Ég geri samt ráð fyrir að ástandið hérna muni hafa mikil áhrif á þær umsagnir sem ég fæ þar.“

Nánar á vef Fréttablaðsins en þar má meðal annars sjá viðbrögð Dags B. Eggertssonar borgarstjóra sem sjálfur býr við Óðinsgötu.