Inga fékk jólaósk sína uppfyllta - skoraði á Alþingi að sýna manngæsku

Þann 10. nóvember sl. lagði Inga Sæ­land þing­maður Flokks fólksins fram breytingar­til­lögu við frum­varp fjár­mála­ráð­herra til fjár­auka­laga. Seint í gærkvöldi var samþykkt með atkvæðagreiðslu á Alþingi að greiða 60.300 króna eingreiðslu (jólabónus) til öryrkja í desember.

Sú ákvörðun er byggð á breytingartillögu Ingu Sæland við fyrirliggjandi frumvarpi til fjáraukalaga en Inga sendi áskorun á Alþingi í grein á Vísi í gær.

Alþingi samþykkti að hækka ein­greiðslu til ör­yrkja yrði hækkuð úr 27.772 krónum skatta og skerðinga­laust í 60.000 krónur.

„Þar er um að ræða ein­stak­linga sem áður voru ör­yrkjar en við 67 ára aldur urðu „stál­heil­brigðir“ eldri borgarar og í stað greiðslu frá TR vegna ör­orku fá nú greiðslu þaðan sem elli­líf­eyri. Sú greiðsla er lægri en greiðslan vegna ör­orkunnar var. Einnig eru í þessum sára­fá­tækasta hópi eldra fólks full­orðnar konur sem eyddu starfs­ævi­árum sínum í hið van­þakk­láta starf heima­vinnandi hús­móður. Gamlar konur í dag sem eiga engin réttindi úr líf­eyris­sjóði en eru kyrif­lega múraðar inni í ramm­gerðri fá­tæktar­gildrunni sem sjó­rn­völd hafa múrað um svo allt of marga,“ skrifaði Inga

„Á fundi fjár­laga­nefndar Al­þingis í gær­morgun var svo sam­þykkt að greiða 60.300 króna ein­greiðslu til ör­yrkja í desember. Á­kvörðun sem er byggð á breytingar­til­lögu minni við fyrir­liggjandi frum­varpi til fjár­auka­laga hvað lítur að skatta og skerðinga­lausri greiðslu til ör­yrkja. Þann hluta ber að þakka og miður að þurfa á sama tíma að for­dæma þau vinnu­brögð nefndarinnar að hundsa enn og aftur aldraða í sárri neyð. Enn og aftur að mis­muna þeim og snúa blinda auganu að van­mætti þeirra og bágindum,“ skrifaði Inga

„Það myndi kosta ríkis­sjóð um 360 millj. kr. að koma til móts við þennan verst setta hóp eldra fólks. Hvernig getur það vafist fyrir fjár­mála­ráð­herra að hjálpa þeim? Hann sem hefur óskað um­boðs í fjár­aukanum upp á 6 milljarða króna til að fjár­festa í nýju höll Lands­bankans á Austur­bakka. Það sem ég kalla Snobb-Hill og ekkert annað. Það vefst ekki fyrir ríkis­stjórninni að lækka banka­skatt um milljarða króna hjá mold­ríkum fjár­mála­stofnunum sem eru nú í óða­verð­bólgu og okur­vöxtum að maka krókinn sem aldrei fyrr á kostnað skuld­settra heimila og fyrir­tækja. Það hefur heldur ekki vafist fyrir þeim að lækka veiði­gjöldin á stór­út­gerðina eins og raun­veru­lega var gert á síðasta kjör­tíma­bili,“ skrifaði Inga.

„Það er kald­hæðnis­legt í meira lagi að ráð­herra mála­flokksins skuli reyna að rétt­læta það hvernig hann ætlar að skilja þennan fá­tækasta hóp aldraðra út­undan með þeim rökum, að lögunum hafi verið breytt til batnaðar fyrir þau á dögunum. Stað­reyndin er hins vegar sú að sá hópur sem breytingar­til­laga mín tekur til, er ekkert betur settur þótt lögunum hafi verið breytt. Grunn­fram­færsla þeirra er sem fyrr, langt undir fá­tæktar­mörkum.“

„Ég skora hér með á alla þá sem hafa vald til, að sýna gæsku og mann­úð fyrir jólin. Það er aldrei of seint að gera betur,“ skrifaði Inga að lokum.