Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, hálfíslenskur leiðtogi jafnaðarmanna í Nuuk á Grænlandi, sækist eftir því að verða borgarstjóri Nuuk. Þann 6. Apríl næstkomandi fara fram bæði þingkosningar og sveitarstjórnarkosningar og leiðir Inga Dóra framboð Siumut til borgarstjórnar Nuuk.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag þar sem rætt er við hana.
Inga kemur víða við í viðtalinu og ræðir meðal annars um stöðu mála í Grænlandi í heimsfaraldrinum. Faraldurinn hefur ekki bitið mjög fast en landið er þó lokað. Frá upphafi faraldursins hafa aðeins 30 tilfelli kórónuveirunnar greinst.
Það eru þó næg verkefni framundan og nefnir Inga Dóra að margir Grænlendingar séu utan vinnumarkaðar vegna félagslegra vandamála.
„Hér eru margar fjölskyldur sem eiga bágt og mikil meðvirkni í gangi. Við þurfum sterkara félagslegt kerfi til að koma fólki í meðferðir og þess háttar,“ segir hún.
Þá ræðir Inga Dóra sjálfstæðismálin en skemmst er að minnast hugmyndar Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, um að Bandaríkjamenn myndu kaupa Grænland af Dönum.
Inga Dóra segir að þetta hafi vakið áhuga fólks á Grænlandi og aukið ferðamannastrauminn til muna.
„Orð Trumps voru okkar Eyjafjallajökull,“ segir hún og bætir við að orð Trumps hafi einnig vakið Dani til umhugsunar um stöðu landsins. „Þetta hafði áhrif á sýn Dana á Grænland. Það er að þeir telja sig þurfa að taka Grænlendinga meira inn í mörkun utanríkisstefnunnar. Við Grænlendingar fengum líka meira sjálfstraust þó að við höfum vitað lengi að lega landsins sé mikilvæg.“