Inga Björk svarar Konráð: „Mjög margt fatlað fólk í fáránlega erfiðri stöðu“

Hagfræðingurinn Konráð Guðjónsson setur stór spurningamerki við upplifun landsmanna af Covid-faraldinum og spyr á Twitter:

„Er Landspítalinn eini vinnustaður landsins þar sem COVID smit starfsfólks setja allt á hliðina eða er ekki sagt frá því annarsstaðar? Eða er langflestum orðið drull um veiruna (ekki svo) skæðu?

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, svaraði honum:

„Nei það er mjög margt fatlað fólk í fáránlega erfiðri stöðu. meðal annars ég, sem þarf að treysta á fjölskyldu og vini til þess að sinna grunnþörfum mínum sem er glatað. Kannski búið og orðið ómerkilegt fyrir þér en það eru ekki allir jafn heppnir.“

Konráð svaraði henni:

„Það er alveg glatað og ég get varla ímyndað mér hvernig það er. Nú er það samt svo að einangrun, sem er mannanna verk, verður afnumin eftir korter sem þá vonandi leysir þetta, eins og virðist hafa heppnast ágætlega í okkar helstu samnburðarlöndum.“

Júlía nokkur tók undir með Ingu:

„Ég vinn einmitt hjá fatlaðri manneskju og erum að lenda í miklu veseni vegna Covid. Þessi manneskja þarf aðstoð 24/7 og þetta er bara mjög erfitt. Var brjáluð þegar þessar afléttingar voru kynntar“