Inga Sæland, þingmaður Flokks fólksins, hefur fengið fjölda athugasemda við frumvarp sitt um blóðmerahald. Frumvarpið kveður á um að blóðmerahald hér á landi verði bannað og sitt sýnist hverjum um það.
Inga Sæland birti bréf sem hún fékk frá blóðmerabónda en sá er ekki ánægður með Ingu. Kallar bóndinn Ingu hræsnara og hreinlega dýraníðing.
Bréfið sem Inga birtir má sjá hér að neðan:
„Sæl fru inga sæland.
Er í alvörunni ekki gerð nein krafa um að það sem þið á alþingi látið út úr ykkur í pontu, sé satt og rétt. Þegar þú lætur frá þér frumvarp, sem hefur áhrif á þó nokkuð marga, er þá ekki lágmarkskrafa að þið hafið kannað allar hliðar og hafið réttar upplýsingar. Ekki afbakaðar og tilhæfulausar lygar.
Við skulum bara horfast í augu við það að þér er nákvæmlega sama um þessar hryssur. Þér er alveg sama þó það þurfi að slátra þeim flestum.
Heldur þú að þetta séu einhverjir einnota hlutir? Ég veit hvað þær heita, hvernig þær eru á litinn, hvernig skapgerð þær hafa. Hvað varðar þig líka um það þó maður liggi andvaka á gamlársnótt með áhyggjur af merunum hvort þær hafi ætt yfir margar girðingar eitthvað út í loftið, af því að einhverjir vanvitar telja það skyldu sína að skjóta upp flugeldum. En þér er alveg sama, því þú ert dýraníðingur.
Mér er ekki sama um þessar merar, mér þykir vænt um þær og margar hafa fylgt mér í mörg ár. Ég er ekki dýraníðingur þó ég taki blóð úr þessum merum og við sem erum í þessu flest, reynum að hugsa eins vel um þær og við getum.
Þú þykist líka vera talsmaður fátækra. Bændur eru flestir fátækir og nú þegar allt hækkar þá verður enn erfiðara að búa. Við erum að framleiða matvæli og við þurfim tekjur eins og aðrir til að lifa af.
Nú þegar þú ætlar að reyna að taka af okkur þennan tekjustofn, varstu þá búin finna einhverjar lausnir handa okkur, koma einhverjar aðgerðir svo við getum haldið áfram. Nei ég hélt ekki. Þér er nefnilega sama um fátæka bændur. Þú ert hræsnari.“