Inga birtir árs­gamalt mynd­band: „Þetta var sem sagt fyrir CO­VID og allir frjálsir innan lands“

„Þetta var sem sagt fyrir Co­vid og allir frjálsir innan lands. Árs­há­tíðir og gleði út um allt land. Nú hins vegar er öldin svo sannar­lega önnur þrátt fyrir að þurfa alls ekki að vera það,“ segir Inga Sæ­land, for­maður Flokks fólksins, á Face­book-síðu sinni.

Þar birtir hún mynd­band sem hún tók fyrir nær sléttu ári, en þann 2. febrúar 2020 var hún á leið frá Siglu­firði til Akur­eyrar. Í mynd­bandinu hefur hún orð á því að 50-60 manna hópar hefðu verið á göngu­skíðum á Siglu­firði helgina áður. Ekki benti margt til þess á þeim tíma­punkti að CO­VID-19-far­aldurinn myndi draga á þriðju milljón ein­stak­linga til bana á innan við ári.

„Co­vid hefði aldrei þurft að stjórna lífi okkar hér innan­lands sem raun ber vitni. Með því að hafa strax gripið til þess ráðs að fara þá leið sem Ný-Sjá­lendingar hefa fylgt þá værum við frjáls hér heima. Engar lokanir, engar grímur eða ná­lægðar­reglur. Tveggja vikna sótt­kví í sótt­varnar­húsi eftir komuna til landsins hefði tryggt okkur allt það.“

Inga segist í færslu sinni velta fyrir sér sam­fé­lags­legum og fjár­hags­legum á­bata af þessum þremur bylgjum plágunnar. Kveðst hún bíða spennt eftir sviðs­myndum ríkis­stjórnarinnar varðandi það.

„Skásta úr­ræðinu til þessa er nú beitt á landa­mærunum en þrátt fyrir það með ein­beittum vilja hunsa ein­hverjir reglurnar sem þeir eiga að fylgja við komuna til landsins.

Ég velti fyrir mér af hverju þjóðin hefur ekki verið spurð að því hvort hún vilji veiru­frítt frelsi innan­lands eða bælandi að­gerðirnar sem notast hefur verið við til þessa.“

Þetta var s.s fyrir Covid og allir frjálisr innan lands. Árshátíðir og gleði út um allt land. Nú hins vegar er öldin svo...

Posted by Inga Sæland on Miðvikudagur, 3. febrúar 2021