Inga af þingi

Inga Sæ­land og flokkur hennar. Flokkur fólksins, næði ekki manni á þing í næstu Al­þingis­kosningum ef marka má nýjan Þjóðar­púls Gallup.

Niður­staða könnunarinnar hlýtur að teljast á­fall fyrir flokkinn en þar sögðust einungis 4,1 prósent svar­enda ætla að ljá flokknum at­kvæði sitt. Fimm prósenta fylgi þarf á lands­vísu til að ná inn á þing.

Flokkur fólksins bauð fyrst fram í Al­þingis­kosningunum árið 2016 eftir að hann var stofnaður 29. apríl sama ár. Í kosningunum í októ­ber árið eftir fékk flokkurinn fjóra þing­menn. Nú eru þing­menn hans einungis tveir, Inga Sæ­land for­maður og Guð­mundur Ingi Kristins­son þing­flokks­for­maður.

Sam­­kvæmt Þjóðar­púlsinum eru Sósíal­istar í sókn og bæta við sig einu prósentu­­stigi, 6,7 prósent svar­enda sögðust styðja þá. Fylgi annarra flokka breyttist lítið milli mánaða og nýtur Sjálf­stæðis­flokkurinn mest fylgis, eða 24,5 prósenta.

Þá sögðust 58 prósent svar­enda styðja nú­verandi ríkis­stjórn.

Niður­stöðurnar eru úr net­könnun sem Gallup gerði dagana 29. júlí til 15. ágúst. Heildar­úrtaks­stærð var 6.238 og þátt­töku­hlut­fall var 48,9 prósent. Vik­mörk á fylgi við flokka eru á bilinu 0,8-1,7 prósent. Ein­staklingar í úr­taki voru valdir af handa­hófi úr Við­horfa­hópi Gallup.

Niður­stöður Þjóðar­púls Gallup.
Mynd/Gallup