Indriði hrósar Landspítalanum eftir að hurð skall nærri hælum

Indriði Ketilsson, bóndi á Ytra-Fjalli í Aðaldal, segir mikilvægt að geta þess sem vel er gert. Indriði skrifar stutta grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag þar sem hann hrósar Landspítalanum fyrir skjót viðbrögð og góða umönnun eftir að hann greindist með meinsemd í ristli rétt fyrir jól.

„Læknir minn á Húsavík taldi þörf á að fjarlægja hana og sendi beiðni um slíkt til LSH. Fékk ég svo boð þaðan í þorrabyrjun um að koma til aðgerðar 10. febrúar. Var ég skorinn í sundur og skeyttur saman, ef svo má segja, meinsemdin burt og hluti ristils,“ segir hann.

Hann lá í fjóra daga á Landspítalanum við besta aðbúnað, en síðan fengu hann og konan hans, sem hann segir líka hafa veitt dýrmætan stuðning, vist á sjúkrahóteli Landspítalans allt til 2. mars síðastliðinn.

„Lauk svo eftirliti með þeim orðum skurðlæknis að aðgerðin hefði ekki mátt lengi bíða. Ég leyfi mér að hrósa og vekja athygli á hve bygging og rekstur sjúkrahótels við hlið LSH er þarft og gott fyrirtæki og viðmót og umhyggja starfsfólks þess góð,“ segir Indriði sem endar greinarstúf sinn á þessum orðum:

„Þessi aðstaða er sérstaklega dýrmæt þeim sem fjarri búa, en notast líka vel mörgum höfuðborgarbúum sem af ýmsum ástæðum eiga ekki hægt með ferðir eða heimadvöl. Sumir þurfa daglega þjónustu á LSH, jafnvel vikur og mánuði. Þakkir mínar eiga allir sem ég mætti á þessum ferli og studdu bata minn.“