Indriði Aðalsteinsson, sauðfjárbóndi á Skjaldfönn í Ísafjarðardjúpi, er harðorður í garð íslenskra veiðimanna í viðtali í Fréttablaðinu í dag. Hann segir að rjúpan sjáist ekki lengur í kjörlendi hennar á Langadalsströnd – svæði sem var rómað af rjúpnaveiðimönnum á árum áður.
Indriði veiddi sjálfur rjúpu en lagði byssuna á hilluna um aldamótin þegar rjúpunni tók að fækka hratt. „Hér voru risastórir flokkar af rjúpu á síðustu öld,“ segir Indriði en hann hætti veiðum þegar hann sá í hvað stefndi.
„Þá fór ég í birtingu með riffilinn um öxl og ætlaði mér góðan dag, enda kringumstæður góðar, stilla og snjódílar í fjöllum. Ég sá átta rjúpur, skaut þær allar, en sá svo ekki meira af fugli þann daginn. Þar með hætti ég þessu.“
Indriði hefur verið gagnrýninn á rjúpnaveiði allar götur síðan.
„Mér ofbýður þessi brjálæðislega veiðimennska þar sem menn plaffa höglunum á heilu hópana á flugi. Það er svívirðilegur ræfildómur. Rjúpur eiga menn að skjóta með rifflum á jörðu niðri. Annað er böðulsháttur,“ segir hann meðal annars og segir að stofninn sé ekki í veiðihæfu ástandi.