Indíana ó­sam­mála Simma Vill: „Þetta er meira um­ræðan um sjálfs­fróun og full­nægingar“

Kyn­fræðingurinn Indíana Rós er ekki sam­mála at­hafna­manninum Simma Vill sem velti því upp á dögunum hvort ís­lenskar konur væru kyn­sveltar.

Simmi hélt því að fram að það gæti út­skýrt allar kyn­lífs­verslanirnar á Ís­landi um þessar mundir en þeim vegni ein­stak­lega vel vegna þess. Indíana er ósammála þessu.

„Ég held það sé meira að um­ræðan um sjálfs­fróun, full­nægingar kvenna og kyn­lífs­á­nægju kvenna,“ segir Indíana í sam­tali við Regínu Ósk og Yngva Ey­steins á K100.

„Ég meina eins og ef ég hugsa um kyn­fræðsluna mína. Þá var það eitt­hvað: Strákar eru með typpi. Þeir fá það, þeir fá sáð­lát. Konur fara á túr. Og hérna eru upp­lýsingar um túr. Þið verðið ó­léttar og þetta er allt ömur­legt og hrika­legt. En svo er það bara hey: Það er snípur þarna? Vá, snertum hann að­eins. Hey, það er tæki sem getur hjálpað mér með það,“ bætti hún við.

„Ég held það sé frekar það heldur en að við séum eitt­hvað kyn­sveltar,“ sagði hún einnig og fagnaði því að konur væri komnar með meiri rödd.

Hægt er að hlusta á við­talið við Indíönu hér.