Ilmur snöggreiddist og reif blaðið í tvennt: „Ekki er þetta valdeflandi, svo mikið er víst“

Óhætt er að segja að færsla leikkonunnar Ilmar Kristjánsdóttur um leshraðapróf sem sonur hennar í 3. bekk gekkst undir á dögunum hafi vakið athygli.

„Þessi leshraðapróf. Getur einhver hjálpað mér að skilja hvers vegna í ósköpunum við erum að leggja áherslu á börnin okkar lesi hratt,“ spyr Ilmur í færslu sinni á Facebook í gærkvöldi.

Í færslunni útskýrir hún að hún sé með strák í 3. bekk sem hefur áhuga á lestri – ennþá að minnsta kosti.

„Hann les mjög vel, þegar hann les upphátt fyrir mig legg ég áherslu á að hann lesi fallega og að hann skilji það sem hann les. En það virðist ekki vera lögð áhersla á það í skólanum, bara að hann lesi hratt. Um daginn kom hann heim úr skólanum og rétti mér blað, ég sá á líkamstjáningunni að hann skammaðist sín. Á blaðinu var helvítis hraðalínuritið -sem hafði farið niður á við, honum hafði farið aftur. Ég snögg reiddist og reif blaðið í tvennt, honum brá en skömmin vék fyrir undrun. Ég reiddist vegna þess að ég hafði verið að hrósa honum fyrir framför í lestrinum deginum áður, hann er nefnilega farinn að lesa með tilfinningu, ég sé að hann kemur sjálfum sér á óvart þegar hann les og ég sé að hann eflist við það. Enda getur það verið mjög valdeflandi að heyra rödd sína hljóma.“

Ilmur rifjar svo upp að þegar dóttir hennar var í 3. bekk hafi íslenskukennarinn hennar stoppað hana úti á götu til að hrósa henni. Nefndi kennarinn að hún læsi fallega og það væri gaman að hlusta á hana.

„Svo fóru einkunnirnar hennar að dala, hún hélt ekki í við hraðann sem verið var að mæla. Hún fór líka að missa áhugann. Í foreldraviðtali í 7. bekk spurði hún sjálf kennarann sinn, þegar kom að gagnrýni á leshraða hjá henni, hvort hún ætti bara að buna útúr sér textanum án þess að skilja hann? - Það var fátt um svör enda virðist enginn skilja tilganginn með þessu. Ekki kveikir þetta áhuga á lestri, ekki eykur þetta skilning og ekki er þetta valdeflandi, svo mikið er víst.“

Ilmur segist hafa heyrt að það liggi einhver vísindi á bak við þetta en ekki hvaða vísindi.

„Eru þau vísindi sem sýna að 38% barna sem útskrifast úr grunnskóla nái ekki grunnfærni í lesskilningi ekki næg vísindi til að sanna að þessar aðferðir virki ekki? -Eða er sá sem tók ákvörðunina um að þetta sé rétta leiðin kannski æviráðinn eins og flestir stjórnendur í íslensku menntakerfi?“

Ilmur segist vita að hún getur haft áhrif á sín börn og lagt áherslu á það að þau lesi fallega. „En ég hef nú ekki meiri áhrif en svo að áðan þegar við sonur minn vorum að fylla út blað fyrir foreldraviðtal og hann er þar spurður hvað hann vilji gera betur í skólanum, þá svarar hann "ég vil lesa hraðar".“