Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, ætlar ekki að segja starfi sínu lausu. Þetta sagði hún í tíufréttum RÚV í kvöld eftir að fundi stjórnar KSÍ lauk skömmu áður, eftir að hafa staðið frá klukkan fimm síðdegis.
„Ég er ráðinn starfsmaður knattspyrnusambandsins og hef starfað hér í 27 ár, sem er dágóður tími. Ég er klár í það að halda áfram og mun takast á við það með nýrri stjórn þegar þar að kemur,“ sagði Klara í tíufréttum.
Þessi tíðindi leggjast illa í Illuga Jökulsson sem gerir viðtalið að umtalsefni í færslu á Facebook.
„Ég held að viðtalið við Klöru Bjartmarz hafi verið sorglegasta dæmið um algjörlega firrtan hroka sem ég hef séð, fyrr og síðar,“ skrifar Illugi.