Illugi telur það geta bjargað lífi VG ef hann fer ekki í ríkis­stjórn með Sjálf­stæðis­flokki

Illugi Jökuls­son, rit­höfundur og sam­fé­lags­rýnir, telur að það geti reynst heilla­skref ef VG fer í sam­starf með Fram­sóknar­flokki og Sam­fylkingu, með stuðningi Pírata.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði í Silfrinu á RÚV í morgun að Píratar myndu styðja slíkt sam­starf. Margt bendir til þess að Sjálf­stæðis­flokkur, Fram­sóknar­flokkur og VG haldi ríkis­stjórnar­sam­starfi sínu á­fram en aðrir kostir eru svo sannar­lega á borðinu.

Sam­fylkingin, VG og Fram­sókn fengu sam­tals 27 þing­menn í ný­af­stöðum kosningum en með stuðningi Pírata yrðu 33 þing­menn á bak við ríkis­stjórnina, eða þriggja manna meiri­hluti.

Illugi segir í pistli á Face­book-síðu sinni að það sé ljóst að til að halda á­fram í ríkis­stjórn með Sjálf­stæðis­flokki og Fram­sóknar­flokki þá þurfi VG að fórna annað hvort heil­brigðis­ráðu­neytinu eða um­hverfis­ráðu­neytinu.

„Það er mjög vafa­samt að flokkurinn lifi það hrein­lega af, sér í lagi þegar dregur að næstu kosningum. Þetta væri hins vegar leið til þess að flokkurinn gæti haldið þeim ráðu­neytum báðum,“ segir Illugi.

Hann segir að mögu­lega þurfi VG að gefa Fram­sóknar­flokknum eftir for­sætis­ráðu­neytið en Katrín Jakobs­dóttir væri full­sæmd af því að vera utan­ríkis­ráð­herra. Segir Illugi að hún gæti reyndar unnið þar öflugra starf en títt er um ís­lenska utan­ríkis­ráð­herra.

„Ég mundi reyndar helst vilja hafa Pírata með í svona stjórn. Þeir eru heiðar­legir og rétt­sýnir,“ segir Illugi að lokum.