Illugi svarar Jóni pirraður: „Af­sakaðu af hverju ertu að nefna mig hér til sögunnar?“

Jón Viðar Jóns­son leik­hús­gagn­rýnandi tekur undir með Kjartani Magnús­syni borgar­full­trúa um að Dagur B. Eggerts­son, borgar­stjóri sé í „hefndar­leið­angri.“

Kjartan sagði slíkt í við­tali á Vísi en þar leggst hann gegn fyrir­hugaðri lokun Borgar­skjala­safns og segir vinnu Dags að baki til­lögunni ó­vandaða.

„Mikið rétt, Kjartan, þetta lyktar því miður ekki meir af öðru en hefni­­girni. Auk þess að vera dæmi um fá­­dæma heimsku og full­komið skilnings­­leysi á því menningar­hlut­­verki sem Reykja­víkur­­borg hefur gegnt, oft með sóma, á aðra öld. Ég tek raunar eftir því að ýmsir FB-vinir mínir, sem eru annað hvort fé­lagar eða ná­komnir Sam­­fylkingunni í anda og ó­­­feilnir við að tjá sig hátt og skýrt hve­­nær sem "Í­haldið" á í hlut, að þeir eru nú undar­­lega hljóð­látir,“ skrifar Jón á Face­book.

„Ég hef td ekki orðið þess var að Sam­­fylkingar­­maðurinn Guð­­mundur Andri Thors­­son sem eins og ég og fleiri bera ís­­lenska menningu fyrir brjósti, hafi tjáð sig um þetta. Ekki heldur Illugi Jökuls­­son. Hafi þeir gert það án þess að ég hafi orðið var, bið ég þá for­láts og þá um leið að sýna mér þær greinar/færslur sem þeir kunna að hafa birt um þetta. Annars væri vita­skuld fróð­­legt að heyra hvað þeir og ýmsir aðrir fé­lagar þeirra hafa um þessa ó­­svinnu að segja,“ segir Jón að lokum.

Margir hafa tekið undir með Jóni og segir Kristján Frí­mann Kristjáns­son meðal annars að hann sé sam­mála. „Þetta lyktar allt illa,“ segir Kristján.

Illugi Jökuls­son er hins vegar ekki sáttur með að vera bendlaður í færslunni. „Af­sakaðu, en af hverju ertu að nefna mig hér til sögunnar í ein­hverjum spælingar­­tóni?“ spyr Illugi en svör höfðu ekki borist þegar þetta er ritað.