Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður gagnrýnir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra harðlega fyrir það hvernig hann brást við skýrslu Transparency International um spillingu hér á landi.
Eins og greint var frá í gær fellur Ísland um sex sæti á listanum og er nú í 17. sæti, langneðsta sætinu af Norðurlöndunum. Logi Einarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði Bjarna út í þetta á Alþingi í gær en Bjarni gerði lítið úr málinu, sagði að ekki þyrfti að hafa miklar áhyggjur af spillingu hér á landi.
Sjá einnig: Bjarni: Léttvæg dæmi um spillingu – Logi: „Dæmi nú hver fyrir sig“
Illugi gerir málið að umtalsefni í pistli í nýjasta tölublaði Stundarinnar. Þar bendir hann á að skýrslu Transparency International séu teknar grafalvarlega úti í heimi, enda byggja þær á áliti þeirra sem lifa og hrærast á stöðum þar sem spilling á sér stað.
„Þetta er sem sagt álit þeirra sem VITA hvernig kaupin gerast á eyrinni á Íslandi. Ekki þeirra sem giska, halda, ímynda sér, fabúlera. Nei, þeir VITA. Og það þarf ekki að taka fram að þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ráðandi afl í íslensku samfélagi í áratugi, og alveg sérstaklega lagt sig í framkróka við að hafa viðskipta- og fjármálalíf og stjórnsýslu undir sínum ægishjálmi, þá getur Sjálfstæðisflokkurinn ekki fríað sig á nokkurn hátt ábyrgð á því hvernig komið er fyrir spillingu í landinu,“ segir Illugi meðal annars.
Hann vísar svo í ummæli Bjarna á Alþingi eftir að Logi hafði bent honum á bankahrunið, fjármálavafstur stjórnmálamanna í Panamaskjölunum, Landsréttarmálið og nú síðast Samherjamálið. Gerði Bjarni raunar lítið úr þessum málum og sagði það skipta máli hvort menn litu svo á að glasið væri hálftómt eða hálffullt. Þá skaut hann á Loga og Samfylkinguna fyrir að mælast lægri en Sjálfstæðisflokkurinn í skoðanakönnunum, en það gerði hann eftir að Logi hafði vitnað í skoðanakönnun þar sem innan við fjórðungur svarenda sagðist treysta Bjarna til að halda utan um söluna á Íslandsbanka.
Illugi klórar sér í kollinum yfir þessum svörum Bjarna og spyr: „Hversu lágt er hægt að leggjast til að reyna að dreifa umræðunni?“ Hann spyr svo hvort fólki geti ekki verið sammála um að það sé óhæfa að formaður í þeim flokki, sem er með allt niðrum sig í spillingarmálum, skuli vera fjármálaráðherra og stundum forsætisráðherra, hér á landi.
„Og komi svo í ræðustól með hótfyndni um fylgi Samfylkingar þegar á að ræða grafalvarleg mál? Kannski ætti ég ekki að spyrja Bjarna hversu lágt sé hægt að leggjast. Kannski ætti ég að spyrja okkur öll. Já, hversu lágt getum við lagst áður en við tökum í taumana?