Illugi skorar á KSÍ: „Væri það ekki alveg kjörið?“

Illugi Jökuls­son rifjar upp lands­leiki Ís­lands og Eist­lands þann 24. apríl 1996, í að­draganda lands­leikja Ís­lands við Armeníu og Liechten­stein. Í hóp fyrir lands­leikina eru tveir synir Eiðs Smára Guð­john­sen og skorar Illugi á KSÍ að hinum 43 ára gamla Eið verði skipt inn á völlinn og leiki nokkrar mínútur með sonum sínum.

„Þann 24. apríl 1996 voru þeir Arnór Guð­john­sen og Eiður Smári í dauða­færi á að verða fyrstu feðgarnir til að spila saman lands­leik í fót­bolta. Þá var Ís­land að fara að keppa á úti­velli við Eist­land. Hjá KSÍ voru menn hins vegar svo púka­legir að skipa lands­liðs­þjálfaranum Loga Ólafs­syni að tefla þeim ekki fram saman (Aha, for­maður KSÍ að hafa af­skipti af vali lands­liðsins!!),“ skrifar Illugi.

„Núna hafa tveir synir Eiðs verið valdir í lands­liðið gegn Armeníu og Liechten­stein, þeir Andri Lucas og Sveinn Aron. Þá er spurningin hvort KSÍ geti ekki bætt fyrir skamm­sýni Eggerts með því að tefla Eiði fram á­samt strákunum sínum í fremstu víg­línu, amk í leiknum gegn Liechten­stein. Hann er náttúr­lega ekki í leik­æfingu og orðinn 43 ára gamall, en gæti nú alveg enst hálf­tíma eða svo gegn ekki sterkara liði en frá fursta­dæminu í Ölpunum.

Ha, væri það ekki alveg kjörið?“