Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson lagðist í vinnu við að skoða á netinu þá fjóra umsækjendur um starf lögreglustjóra í Vestmannaeyjum sem sátu eftir með sárt ennið þegar Jón Gunnarsson skipaði Karl Gauta Hjaltason í embættið.
Karl Gauti, sem er fyrrverandi þingmaður Fólks flokksins og Miðflokksins, er sem kunnugt er þekktur fyrir þátt sinn í Klausturmálinu svokallaða sem varð til þess að hann var rekinn úr Flokki fólksins.
Leynilegar upptökur vörpuðu ljósi á dónatal Klausturkarlana og barst útlit Írisar Róbertsdóttur, bæjarstjóra í Eyjum, meðal annars í tal.
Íris hefur lýst furðu sinni á skipun Karls Gauta í embættið en kvaðst þó ætla að vinna með þeim lögreglustjóra sem skipaður er til starfa í Eyjum.
Illugi skrifaði færslu um málið á Facebook í gærkvöldi og varpaði ljósi á þá sem fengu ekki starfið í Eyjum. Þetta eru Arndís Bára Ingimarsdóttir aðstoðarsaksóknari, Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari, Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari og Sigurður Hólmar Kristjánsson aðstoðarsaksóknari.
„Þau virðast öll hafa til að bera mjög viðamikla reynslu af löggæslu-, lögmanns- og stjórnunarstörfum, mismikla auðvitað. Tveir af þessum umsækjendum hafa þegar verið lögreglustjórar í Eyjum í afleysingum nokkurn tíma. Einn umsækjandi skreytti sig merki Sjálfstæðisflokksins á Facebook um tíma svo ekki vantaði nú góðan Sjálfstæðismann,“ segir Illugi og bætir við að Jón Gunnarsson geti ekki haldið því fram að hann hafi skort brúklega umsækjendur og þess vegna hlotið að skipa Klausturkappann.
En hvers vegna varð Karl Gauti þá fyrir valinu?
„Ástæðurnar geta aðeins verið tvær. Jón Gunnarsson gerir þetta að skipan Bjarna Benediktssonar af því Bjarni vill halda leið opinni til Miðflokksins ef Sjálfstæðisflokkinn vantar nýja hækju í ríkisstjórn. Eða að Jóni Gunnarssyni finnst einfaldlega að Klaustarkappar séu réttu mennirnir til að stýra lögreglunni. Ég veit ekki hvor skýringin er ömurlegri,“ segir Illugi.