Illugi sendir kaldar kveðjur: „Þetta er Sjálf­stæðis­flokkurinn, gjörið svo vel!“

Illugi Jökuls­son, fjöl­miðla­maður og rit­höfundur, er ekki mikill að­dáandi Sjálf­stæðis­flokksins ef marka má færslu hans á Face­book í dag. Þar rifjar hann upp ýmis mál sem tengjast Sjálf­stæð­lokknum og þakkar Katrínu Jakobs­dóttur og Svan­dísi Svavars­dóttur fyrir að hafa haldið flokknum við völd eftir kosningar.

Eins og greint var frá í gær þáði Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra þyrlu­flug með Land­helgis­gæslunni. Ás­laug játaði svo í dag að það hefðu verið mis­tök að þiggja ferðina þó Land­helgis­gæslan hefði sent til­kynningu þess efnis að enginn auka­kostnaður eða fyrir­höfn hafi hlotist af skutlinu.

Illugi deilir frétt Stundarinnar frá því í morgun þar sem birt voru viðbrögð Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanns VG, vegna þyrlu­ferðarinnar. Í færslunni segir hann:

„Þetta er Sjálf­stæðis­flokkurinn, gjörið svo vel! Það hvarflaði ekki að Bjarna Bene­dikts­syni að það væri neitt rangt við reikninga hans á Seychelles-eyjum. Það hvarflaði ekki að Kristjáni Þór Júlíus­syni að það væri neitt rangt við að hringja í vin og spyrja á­hyggju­fullur hvernig honum liði eftir að sann­færandi á­sakanir birtust um stór­felldar mútu­greiðslur vinarins. Það hvarflaði ekki að Sig­ríði Ander­sen að það væri neitt rangt við að makka með dómara­stöður eins og henni og fé­lögum þóknaðist. Það hvarflaði ekki að Þór­dísi Kol­brúnu að skemmta sér með vin­konum sínum tveim dögum eftir að hún sjálf skrifaði grein í blað þar sem hún hvatti til var­úðar. Það hvarflaði ekki að Ás­laugu Örnu að það væri neitt rangt við að hún fengi björgunar­þyrlu Land­helgis­gæslunnar til sendi­ferða.“

Illugi endar færsluna svo á kald­hæðnis­legum kveðjum til for­ystu­manna VG:

„Takk kær­lega, Katrín og Svan­dís, fyrir að hafa haldið þessum spillta for­réttinda­flokki við völd eftir kosningarnar síðustu. TAKK!“