Illugi sendir Frosta og Mána skilaboð: „Sleppiði mestu kverúlöntunum“

Margir hafa fagnað því að útvarpsþátturinn Harmageddon, með þeim Frosta Logasyni og Mána Péturssyni, skuli vera á leiðinni aftur í loftið.

Þátturinn snýr aftur síðar í þessum mánuði í hlaðvarpsformi og þurfa áhugasamir að greiða hóflegt mánaðargjald fyrir nokkra þætti í viku. Harmageddon-þættirnir nutu mikilla vinsælda á X-inu þar sem þeir voru á dagskrá um margra ára skeið.

Frosti tilkynnti endurkomuna á Facebook-síðu sinni í dag og fögnuðu margir ákvörðun þeirra Frosta og Mána að snúa aftur. Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, sagði til að mynda að þetta væru stórkostlegar fréttir í upphafi nýs árs.

Illugi Jökulsson, þjóðfélagsrýnir og rithöfundur, fagnaði einnig ákvörðuninni en lagði strákunum þó ákveðnar línur.

„Fínt. En sleppiði samt mestu kverúlöntunum. Axel Pétur setti mjög leiðinlegan svip á Harmageddon síðustu misserin. Það er vel hægt að hugsa út fyrir boxið án þess að hleypa þvílíkri vitleysu upp á dekk.“