Rithöfundurinn og samfélagsrýnirinn Illugi Jökulsson segir ríkisstjórnina ekkert hafa til málanna að leggja í Covid-bylgjunni sem nú stendur yfir.
„Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fékk oft verðskuldað hrós fyrir að fylgja nær alveg ráðleggingum sérfræðinga í faraldrinum. Nú er ríkisstjórnin hins vegar búin að klúðra málunum og hefur ekkert fram að færa, ekkert til mála að leggja,“ segir hann í harðorðri færslu á Facebook. Víðir Reynisson hafi aldrei verið jafn mikið niðri fyrir og í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sé varað við algjöru neyðarástandi.
Tók hann svo fyrir orð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra úr kvöldfréttum RÚV í gær og bætti við athugasemdum í sviga, má segja að Illugi tæti orð hennar í sig:
„En góðu tíðindin eru þau að við erum að sjá í raun og veru fleiri og fleiri gögn renna stoðum undir það að það er miklu lægra hlutfall þeirra sem smitast af omikron sem leggst inn á spítala [ÞETTA HAFA ALLIR VITAÐ Í MÁNUÐ].“
Illugi heldur áfram að bæta við athugasemdum við orð Katrínar:
„Við erum ennþá með töluverðan fjölda sem er hins vegar að smitast af delta-afbrigðinu eins og heilbrigðisráðherra hefur vafalaust farið yfir, og vegna þess að smitin eru svo mörg, þá er álagið mjög mikið [ÞETTA VORU FRÉTTAMENN, LÆKNAR OG AÐRIR BÚNIR AÐ MARGENDURTAKA DÖGUM SAMAN EN KATRÍN ER GEFIN FYRIR AÐ EYÐA TÍMA Í VIÐTÖLUM MEÐ ÞVÍ AÐ SEGJA ALMÆLT TÍÐINDI], og við þurfum eins og ég segi að taka á honum stóra okkar [ÞETTA ER HIÐ EINA FRAMLAG FORSÆTISRÁÐHERRA Í FRÉTTINNI: "ÞURFUM AÐ TAKA Á HONUM STÓRA OKKAR"], og standa með fólkinu okkar, sem er auðvitað í þessu núna, 24 tíma á sólarhring að sinna veiku fólki, og það er auðvitað markverður árangur sem bara hefur hreinlega náðst hér á landi þegar við horfum á það hvernig hefur tekist að hlúa að okkar fólki sem hefur veikst [49 ORÐA UPPRIFJUN UM FORTÍÐINA.“