„Þetta bréf sem Arnar Þór Stefánsson lét hafa sig í að skrifa er sennilega eitt það misheppnaðasta í langri bréfasögu þjóðarinnar,“ segir Illugi Jökulsson, rithöfundur og fjölmiðlamaður.
Kjarninn greindi frá því í gær að lögmaður á vegum Samherja, Arnar Þór Stefánsson, hefði sent Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra bréf þar sem hún var krafin um útskýringu á ummælum sem hún lét falla um Samherja á Alþingi í aprílmánuði þess efnis að fyrirtækið hefði gengið of langt.
Orðalag Arnars í bréfinu vakti þó nokkra athygli en þar er Lilja meðal annars þéruð. „Þess er óskað að þér útskýrið af töluverðri nákvæmni ummæli yðar á þingi um þessi efni,“ sagði í frétt Kjarnans um efni bréfsins.
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Bendir hann á að Lilja hafi verið að svara fyrirspurn frá honum til hennar sem yfirmanns RÚV þegar ummælin féllu.
„Mér fannst mikilvægt að fá fram þennan stuðning við stofnunina þegar á henni dundi fáheyrð ófrægingarherferð. Það er mjög sérkennilegt að lögmaður þessa fyrirtækis skuli senda ráðherranum svona bréf. Í svona valdsmannslegum tón, og sýnir ofsann og blinduna sem ráðið hefur för í Samherjabönkernum,“ segir Guðmundur Andri.
Undir þetta tekur Illugi í athugasemd og segir hann bréfið eitt það misheppnaðasta í langri bréfasögu þjóðarinnar. „Með þéringunni og öðrum belgingi væri það hlægilegt ef það væri ekki til vitnis um valdahroka og yfirgang stórfyrirtækisins.“