Illugi segir að verkbann sé í raun útspekúleruð tilraun: „Fyrirtækin gætu alveg borgað hærri laun“

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson tjáir sig um mögulegt verkbann á Facebook-síðu sinni.

Hann fullyrðir að fyrirtækin gætu borgað hærri laun og að verkbann væri tilraun til að hnekkja á verkalýðshreyfingunni.

„Fyrirtækin gætu alveg borgað hærri laun. Þau eru alls ekki á flæðiskeri stödd. Ennfremur: Verkbannshugmyndin er ekki neyðarbrauð fyrirtækja sem eru að falli komin. Þetta er liður í markvissri, útspekúleraðri og ískaldri tilraun til að hnekkja þeim uppgangi verkalýðshreyfingarinnar sem vart hefur orðið síðustu ár og kenna verkalýðsleiðtogum að þiggja aftur brauðmolana af borðum hinna ríku.“

Illugi vill meina að markmiðið sé að sundra verkalýðshreyfingunni, en hann ætlast til þess að þeir sem berjist fyrir betra lífi leggi hönd á plóg.

„Þetta er ætlað til að sundra hreyfingunni, og/eða eyða afli hennar í t.d. verkföllum. Ég ætlast til þess að baráttumenn fyrir betra lífi i þessu landi leggi af mögulega andúð sína á persónum eða leikendum, og taki þátt í að hrinda þessari sókn hinna ríku gegn venjulegu fólki í þessu landi. Taki þátt í því með öllum ráðum. Annars getur fólk heitið nytsamir sakleysingjar auðvaldsins og burstað skóna þess.“