Illugi segir að öllum sé sama um það sem Agnes segir

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson lætur Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup, heyra það í færslu sem birtist á Facebook-síðu sinni.

Það vakti athygli um helgina þegar Agnes að það ríkti þöggun um Guð. Því er hann ósammála. Almennt vill hann meina að enginn taki mark á því sem Agnes segir, en telur að fullyrðing hennar hafi verið svo mikill „hallærisgangur“ að fólk hafi hreinlega þurft að tjá sig.

„Agnes M. Sigurðardóttir hefur að vísu náð þeirri óvæntu stöðu að ekkert af því sem hún segir skiptir nokkurn mann nokkru minnsta máli en þessi hallærisgangur var nú samt slíkur að það er ekki almennilega hægt að láta kyrrt liggja.“ segir hann.

Illugi bendir á að ríkið væri að greiða mikið til kirkjunnar og annara safnaða.

„ÞÖGGUN Í GANGI UM GUÐ!?! Síðast þegar ég vissi hélt ríkið í reynd úti tugum safnaða og einum par hundrað prestum til að boða trú á hinn ímyndaða vin sinn. Má ég kannski biðja um svoleiðis þöggun?“ segir hann.