Illugi reiður: „Það er lág­kúru­legt af stjórn­mála­manninum“

Illugi Jökuls­son, rit­höfundur og sam­fé­lags­rýnir, gagn­rýnir Hildi Björns­dóttur, borgar­full­trúa Sjálf­stæðis­flokksins, harka­lega fyrir um­mæli sín í garð Þór­ólfs Guðna­sonar, sótt­varnar­læknis.

Eins og fram kom í frétt Hring­brautar í gær spurði Hildur í færslu á Face­book hvort að það væri ekki nóg komið af „þessum til­hæfu­lausa hræðslu­á­róðri“ Þór­ólfs. Til­efnið voru um­mæli sótt­varnar­læknisins um að inflúensa og RS veiran kæmu hugsan­lega í veg fyrir að tak­mörkunum yrði af­létt hér innan­lands.

Hildur sagði: „Það er ó­mögu­legt að greina nokkurn á­vinning eða á­bata af á­fram­haldandi tak­mörkunum - hins vegar er miklu til kostað og mörgu fórnað. Veitinga­menn, lista­menn og fjöl­margir aðrir hafa orðið fyrir ó­bætan­legu tjóni af völdum tak­markana sem þjóna ekki lengur al­manna­hags­munum. At­vinnu­rek­endur um alla borg berjast í bökkum vegna heima­til­búinna skil­yrða stjórn­valda, sem eiga sér ekki hlið­stæðu í ná­granna­löndum. Það er löngu tíma­bært að endur­heimta tak­marka­laust sam­fé­lag og eðli­legt líf. Af­léttingar strax.“

Pistill Hildar hefur vakið mikla at­hygli og skapað heitar um­ræður á net­heimum. Keppast net­verjar ýmist við að hrauna yfir hana eða lofa inn­tak pistilsins. Einn af þeim sem eys úr skálum reiði sinnar er rit­höfundurinn og dyggi Face­book notandinn Illugi Jökuls­son. Honum er alls ekki skemmt yfir pistli Hildar.

Í færslu Illuga segir: „Maður getur haft allar mögu­legar skoðanir á sótt­vörnum. Maður getur líka haft allar mögu­legar skoðanir á ráð­leggingum Þór­ólfs Guðna­sonar sótt­varnar­læknis. En að kalla á­hyggjur hans af Córónu­veirunni „hræðslu­á­róður“ — hvort sem þær eru alveg rétt­mætar eða ekki — það er billegt, pópúlískt, rangt og ber­sýni­lega ætlað til heima­brúks í Sjálf­stæðis­flokknum.

Hann heldur á­fram og sakar Hildi um vafa­sama starfs­hætti. „Hildur Björns­dóttir telur greini­lega mikil­vægara að slá keilur í Sjálf­stæðis­flokknum en að setja fram á­byrgt álit og þokka­lega yfir­vegað. Það er lág­kúru­legt af stjórn­mála­manninum Hildi Björns­dóttur,“ segir Illugi.

Ýmsir Face­book-vinir Illuga skella fram skoðunum sínum á þessu hita­máli undir færslu hans. Margir skipa sér í sama lið og taka undir með honum. Guð­rún nokkur vill benda Hildi á að­ferðir breska for­sætis­ráð­herrans: „Má ekki bara minna Hildi Björns­dóttur á hvernig flokks­bróðir hennar í Bret­landi Boris John­son hagaði sér í upp­hafi far­aldursins. Í dag er það kallað mesta slys í heil­brigðis­kerfi Bret­lands.“

Þá leggur Unnur nokkur orð í belg og segir: „Það hefur verið beljandi garg og gól út þessari átt meira og minna allan far­aldurs­tímann. Eigum við ekki bara halda okkur við álit Þór­ólfs - annara ráð hafa gjarnan fært okkur meiri veiru inn í landið og ó­þarf­lega mikil smit.“

Sumir eru þó á öðru máli og taka upp hanskann fyrir Hildi. „þetta er orðið fá­rán­legt engu að síður, það þarf að koma aftur á eðli­legum opnunar­tímum kráa og veitinga­staða, of margir búnir að tapa miklu á þessum tak­mörkunum og við verðum að fara að lifa með þessari veiru, þetta er komið gott. við eigum að vera búin að læra að haga okkur í kringum veiruna, hún er ekki að fara neitt,“ segir Helga nokkur Draum­land.

Þá segir einn að það sé ekki lengur í boði að hafa neina aðra skoðun. „Er enginn leiður á því að vera hræddur og mataður af mis­vísandi upp­lýsingum? Það þorir enginn að hugsa öðru­vísi af ótta við að hafa allan hænsna­hópinn gaggandi á eftir sér,“ segir Magnús nokkur.

Ó­hætt er að segja að veiran fari seint úr sam­fé­lagi okkar. Það sama á væntan­lega við um um­ræðuna í þjóð­fé­laginu, hvernig takast skuli á við hana og með hvaða hætti.