Framsóknarflokkurinn hefur vakið athygli í aðdraganda Alþingiskosninganna 25. september fyrir heldur óvenjuleg slagorð. Eitt þeirra er „Eigum við ekki bara að kjósa Framsókn?“
Þetta slagorð leggst illa í Illuga Jökulsson sem gerir það að umfjöllunarefni í stuttum pistli á Facebook-síðu sinni.
„Þið fyrirgefið, en mér finnst þetta „slagorð“ fyrirlitlegt. Að stjórnmálaflokkur, dyggur þjónn og allragagn auðstéttanna í landinu, sníki nú atkvæði út á að vera laus við „öfgar“ eins og þær að vilja að fátækt fólk njóti mannsæmandi kjara, að sægreifar þurfi að borga sanngjarnt verð fyrir afnot af auðlind okkar allra, að staðið skuli við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu,“ skrifar Illugi og endar pistilinn með þessum orðum: Þetta finnst mér fyrirlitlegt.
Undir þetta taka nokkrir í athugasemdum við pistilinn en ein bendir á að Framsóknarflokkurinn kunni að velja sér auglýsingastofu.