Illugi Jökulsson, rithöfundur og dagskrárgerðarmaður, hefur sent Guðna Bergssyni, formanni KSÍ, póst þar sem hann lýsir óánægju sinni með nýja auglýsingu KSÍ.
Eins og Hringbraut greindi frá í morgun hefur auglýsingin vakið nokkuð hörð viðbrögð en í gær var umrædd auglýsing frumsýnd sem og nýtt tákn íslensku landsliðanna. Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er einn þeirra sem lagði orð í belg og sagði hann meðal annars:
„Við sem höldum með Íslandi eigum að geta gert það án þess að allt þetta bull fylgi með. Saga Íslands snýst ekki um stöðuga varnarbaráttu gegn erlendri ásælni.“
Í auglýsingunni og nýja merkinu er áhersla lögð á landvættirnar fjórar; griðungur, gammur, dreki og bergrisi sem sagðar eru hinar fullkomnu táknmyndir fyrir landslið Íslands. Landvættirnar eru meðal annars sagðar hafa brotið innrásir á bak aftur.
Illugi birti afrit af tölvupósti sínum til Guðna á Facebook-síðu sinni nú í hádeginu þar sem hann segir það alrangt að Íslendingar hafi þurft að verjast með vopnum erlendri ásælni. Póst Illuga má lesa í heild sinni hér að neðan:
„Sæll Guðni.
Mikið þykir mér óendanlega sorglegt að horfa á þetta myndband ykkar, sem á að vera kynning á nýju merki. Ekki er nóg með að þar er ýtt undir hálffasíska en alranga söguskoðun um að Íslendingar hafi sífellt þurft að verjast (með vopnum!) erlendri ásælni, heldur er því þar markvisst gefið undir fótinn að samstaða Íslendinga felist í að verjast útlendingum. Í þröngum skilningi á það kannski við á fótboltavellinum, en finnst þér í alvöru að þetta sé það hugarfar sem KSÍ eigi að ýta undir? Og eiga aðfluttir Íslendingar - hvort heldur þeir eru ættaðir frá Póllandi, Asíu, Afríkulöndum eða hvað sem er - eiga þeir að finna til einhvers stolts við að horfa á þetta víkingarúnk? - þú afsakar orðalagið.
Alveg fyrir utan að textinn í þessum ósköpunum er ekki bara "rangur", heldur er hann flatneskjulegur og illa skrifaður og illa lesinn. Þetta er bara einhvern veginn allt fyrir neðan ykkar - og þar með okkar! - virðingu.
Nú sé ég í umræðum á netinu að sumum finnst þetta flott. Þá það. Hafi það verið markmiðið hjá ykkur með þessu myndbandi að skapa sundrungu og deilur um landsliðið, þá hefur það vissulega tekist. Persónulega ætti ég mjög erfitt með að fara á völlinn ef ég teldi að hugarfarið, sem birtist í þessu myndbandi, væri það sem réði ríkjum innan KSÍ. Og alla vega - ykkur hefði mátt vera ljóst - bara af því að lesa drög að þessari furðusmíð - að þetta myndi vekja andúð og jafnvel ógeð stórs hluta þjóðarinnar. Að þið skuluð EKKI hafa fattað það, finnst mér því miður lýsa algjöru dómgreindarleysi þarna innan dyra hjá ykkur.“
Ég sendi Guðna Bergssyni formanni KSÍ þennan póst rétt áðan: „Sæll Guðni. Mikið þykir mér óendanlega sorglegt að horfa...
Posted by Illugi Jökulsson on Fimmtudagur, 2. júlí 2020