Illugi Jökulsson, þjóðfélagsrýnir og pistlahöfundur, segir að Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri á Akureyri, hafi gengið allt of langt.
Greint var frá því í gær að rannsóknarlögreglumaður sé væntanlegur til Reykjavíkur til að yfirheyra sem sakborninga nokkra blaðamenn, þar á meðal Aðalstein Kjartansson og Þórð Snæ Júlíusson vegna Samherjamálsins svokallaða og umfjöllun blaðamanna um „skæruliðadeildina“ svokölluðu.
Í pistli á vef Stundarinnar fer Illugi yfir málið og rifjar upp ógeðfellda starfsemi skæruliðadeildarinnar. Hann botnar ekkert í þeirri ákvörðun Páleyjar að fara með málið alla þessa leið.
„Hvers vegna Páley lögreglustjóri á Akureyri úthrópar nú fjóra blaðamenn sem „sakborninga“ í þessu máli er ekki bara óskiljanlegt og ótrúlega heimskulegt, heldur er það líka hættulegt. Það er hættulegt ef lögregluyfirvöld ætla að koma blaðamönnum í skilning um að ef þeir vinna vinnuna sína — að koma mikilsverðum upplýsingum til almennings — þá eigi þeir á hættu að verða dæmdir í fangelsi,“ segir Illugi sem er sjálfur reynslumikill blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri.
Bendir hann á að refsiramminn fyrir meint brot sé allt að eins árs fangelsi. Hann vandar Páleyju ekki kveðjurnar.
„Páley þessi hefur hingað til verið kunnust fyrir að hafa ætlað að þagga niður fréttir af nauðgunum á Þjóðhátíð meðan hún var lögreglustjóri í Vestmannaeyjum,“ segir hann og rifjar upp að Páley hafi verið kosin í bæjarstjórn Vestmannaeyja árið 2006 fyrir Sjálfstæðisflokkinn – án þess þó að nefna flokkinn.
„En sem lögreglustjóri á Þjóðhátíð var Páley meir en lítið varasöm fyrir þolendur kynferðisbrota, en nú er hún hættuleg fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu. Og hvernig hvarflaði annað eins að henni? Það er hin stóra spurning. Nú þurfa hin æðstu yfirvöld í þessu landi að byrja á því að leysa Páleyju Borgþórsdóttur frá störfum. Hún veldur bersýnilega ekki því gríðarlega mikilvæga starfi sem hún hefur verið sett í af hinum ónefnda stjórnmálaflokki.“
Illugi ítrekar að það þurfi að losna við lögreglustjórann en hann efast þó ekki um að annað starf bíði Páleyjar handan við hornið. „Svo reddar Sjálfstæðisflokkurinn Páleyju örugglega nýju djobbi,“ segir hann að lokum.
Hér má lesa pistil Illuga í heild sinni.