Illugi minnist Gorbatsjev: „Manneskjulegt andlitið sem hann færði Sovétríkjunum“

Í kvöld greindu fjölmiðlar um allan heim frá andláti Mikhail Gorbatsjev, fyrrverandi aðalritara kommúnistaflokksins í Sóvíetríkjunum.

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Gunnarsson skrifar lítin pistil á Facebook-síðu sína vegna andlátsins.

„Gorbatsjev er dáinn, 91 árs. — Hann hefur lengi verið í meiri metum á Vesturlöndum en heima í Rússlandi. Vesturlandamenn meta hann mikils fyrir manneskjulegt andlitið sem hann færði Sovétríkjunum á endasprettinum og þó enn frekar fyrir að hafa ekki reynt að streytast gegn hruninu með vopnavaldi af einhverju tagi. Það hefði endað með ósköpum, ægilegum ósköpum.“

Þetta skrifar Illugi sem er þakklátur fyrir það að Gorbatsjev hafi verið við völd frekar en einhver annar þegar Sovíetríkin féllu.

„Austur í Rússlandi hafði hrunið hins vegar í för með sér svo mikla erfiðleika, sem ekki er búið að bíta úr nálinni með enn, að þeir sem kenna honum beinlínis um hrunið hafa ímugust á honum. Á sínum tíma hvarflaði ekki að neinum (held ég) að Sovétríkin gætu hrunið. En eftir á að hyggja var það eflaust óhjákvæmilegt. Og þá var vissulega betra, ójá, svo miklu betra að hann væri við stjórnvölinn en ýmsir aðrir.“