Illugi: Mikil blessun að ekki var hlustað á á­kveðna þing­menn

Illugi Jökuls­son, fjöl­miðla­maður og sam­fé­lags­rýnir, segir að það hafi verið mikil blessun að ekki var hlusta á á­kveðna al­þingis­menn og lýta­lækna sem vildu fara aðrar leiðir í bar­áttunni gegn CO­VID-19.

Illugi bendir á að í Banda­ríkjunum og í mörgum Evrópu­ríkjum leiki CO­VID-19 nú lausum hala sem aldrei fyrr, jafn­vel í ríkjum sem eru þekkt fyrir gætni og nefnir hann Þýska­land í því sam­hengi. Á sama tíma virðist veiran vera á undan­haldi hér á landi og er það ekki síst mark­vissum að­gerðum sótt­varna­yfir­valda að þakka.

Í gær var greint frá því að fimm hefðu smitast af veirunni undan­farinn sólar­hring, en sam­kvæmt tölum CO­VID.is í morgun voru einungis 129 virk smit hér á landi í gær. Hefur 14 daga ný­gengi smita farið hratt niður á við undan­farna daga.

Illugi segir að niður­staðan hljóti að vera sú að þrátt fyrir allt hafi ís­lenskum sótt­varnar­yfir­völdum tekist að­dáunar­lega vel upp í vörn sinni gegn pestinni.

„Og mikil guðs blessun að ekki hafi verið hlustað á lýta­lækna og al­þingis­menn sem vildu fara aðrar leiðir,“ segir hann og á þar við Sig­ríði Ander­sen og Brynjar Níels­son.

Margir taka undir með Illuga en Þór Saari, fyrr­verandi þing­maður, bendir á að enn séum við með heil­brigðis­ráð­herra sem fer ekki eftir til­mælum sótt­varnar­læknis um sótt­varnir á landa­mærunum þrátt fyrir að far­aldurinn fari vaxandi í ná­granna­löndum okkar.

„Það verður lík­lega mikið um auka­vaktir vegna Kóvid hjá heil­brigðis­starfs­fólki um jólin, ára­mótin og fram eftir janúar vegna þess.“