Fjölmarga rak í rogastans þegar fregnir bárust af því að launahækkun alþingismanna væri komin til framkvæmda í skugga efnahagskreppu og metatvinuleysis.
Illugi Jökulsson rithöfundur lætur ekki sitt eftir liggja og spilar einn laufléttan leik af Frúnni í Hamborg:
„Katrín! Hvað ætlar þú að gera við peninginn? Svandís, ætlarðu að kaupa þér eitthvað sérstakt eða bara tríta þig svona smátt og smátt?“ skrifar hann á Facebook-síðu sína og vísar í frétt Kjarnans um að launahækkunin sé komin í hús.
„Kolbeinn! Þú kemur þessu nú í lóg, er það ekki? Steinunn Þóra? Þið hin? Mikið er ég glaður að þið hafið fengið pening,“ heldur Illugi áfram og vísar þar til tveggja þingmanna Vinstri grænna.
6,3 prósent launahækkun alþingismanna, ráðherra, ráðuneytisstjóra og annarra æðstu embættismanna tók gildi um síðustu áramót en fyrir mistök var hækkunin ekki greidd út síðustu mánuði.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, greindi frá þessu síðasta fimmtudag og sagði að þingmenn fengu nú afturvirka launahækkun.
„Hækkunin er komin og afturvirk. Það þýðir útborguð laun með leiðréttingunni eftir skatta upp á 915 þúsund krónur (1.518.069 kr fyrir skatt með leiðréttingunni).“