Óhætt er að segja að tíðindi helgarinnar hafi verið framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar til formanns Sjálfstæðisflokksins. Mun hann þar etja kappi við Bjarna Benediktsson sem sækist eftir endurkjöri, en Bjarni hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2009.
Ýmsir hafa spáð í spilin um framhaldið, hvort Bjarni verði ekki áfram formaður Sjálfstæðisflokksins eða hvort Guðlaugur Þór hafi óvænt betur.
Illugi Jökulsson, sagnfræðingur, fjölmiðlamaður og þjóðfélagsrýnir, varpaði fram býsna athyglisverðri spá á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi þegar hann sagði:
„Bjarni mun draga sig í hlé áður en að landsfundi kemur. Þið lásuð það fyrst hér.“
Ekki er víst hvað Illugi hefur fyrir sér í þessu en ljóst er að spennandi vika er fram undan í Sjálfstæðisflokknum.