Illugi Jökulsson rithöfundur segir að mörgum spurningum sé ósvarað í sambandi við blaðamannafund Katrínar Jakobsdóttur sem haldinn var í gær. Það vakti athygli margra að sjá sex ráðherra mæta á fundinn þar sem Katrín kynnti tilslakanir á ferðabanni.
Eins og Hringbraut fjallaði um fyrr í dag varpaði Helgi Seljan fjölmiðlamaður fram þeirri kenningu á Twitter í gær að viðvera ráðherranna á fundinum væri annað hvort til marks um að lítið væri að gera eða að ráðherrarnir væru skíthræddir um sína stöðu.
Ilugi varpar hins vegar annarri kenningu fram á Facebook-síðu sinni.
„Þegar Icelandair kallar, þá er ekki verið að tvínóna við hlutina. Sex ráðherrar voru mættir í Þjóðmenningarhúsið til að styðja við hlutafjársöfnun Icelandair. Því eftir á að hyggja var fundurinn í gær ekkert annað en tilraun til að sannfæra fjárfesta um að óhætt væri að leggja pening í flugfélagið, allt stefndi í rétta átt, rétt bráðum, bara alveg rétt bráðum, þá yrði opnað og þá mundu ferðamennirnir flykkjast til landsins og fjárfestarnir myndu græða múltí pening fyrr en nokkurn þeirra óraði fyrir,“ segir Illugi.
Hann segir það líta þannig út að hugmyndirnar sem þarna voru kynntar hafi sumar í besta falli virst hálfkaraðar. Ferðamönnum mun standa til boða að fara í skimun fyrir COVID-19 við komuna til landsins en eins og Illugi bendir á gat Katrín ekki svarað hvað hún myndi kosta. Þá segir Illugi að enn ótrúlegra hafi verið að búið væri að slá því föstu að allir ferðamenn ættu að vera með rakningarappið í símanum sínum.
„En samt ekki búið að ganga úr skugga um hvort það stangaðist ekki á við einföldustu mannréttindasáttmála, var það virkilega ekki kannað fyrst, hefur þessi ríkisstjórn nákvæmlega ENGAN áhuga á mannréttindum, og þannig var um fleira, svo margt í lausu lofti, og ekki búið að niðurnjörva annað, en til hvers var þá þessi viðhafnarmikli fundur, ef þetta var ekki bara betlibox til fjárfesta að leggja pening í Icelandair?“