Illugi Jökulsson, rithöfundur og þjóðfélagsrýnir, telur að verið sé að bjóða hættunni heim ef fólki frá svokölluðum „grænum löndum“ verður hleypt inn í landið aðgæslulaust.
Illugi tekur þar með undir með Ernu Magnúsdóttur, dósent í lífefnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, sem sagði það glapræði að taka upp litakóðunarkerfi á landamærunum frá og með 1. maí næstkomandi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur tekið aföll tvímæli þess efnis að það verði gert.
Sjá einnig: Ernu líst ekki á blikuna: „Þetta er glapræði“ – Allt sem þarf er eitt smit
Hringbraut sagði frá þessari skoðun Ernu sem telur að ferðaþjónustan hafi mikið um þetta að segja. „Friðþæging ferðaþjónustunnar er greinilega mikilvægara verkefni hjá ríkisstjórninni en að leyfa landsmönnum um frjálst höfuð að strjúka í sumar. Við vitum að það þarf bara eitt smit til að koma af stað bylgju,“ sagði Erna sem sagði að þó land sé grænt sé það engin ávísun að smitaðir einstaklingar komi ekki hingað.
Illugi deilir þessari skoðun með Ernu eins og raunar fleiri. Hann segir á Facebook-síðu sinni:
„Ég hef ekki lagt í vana minn að hafa miklar skoðanir á sóttvarnarmálum og er yfirleitt sammála síðasta ræðumanni. Nú er ég til dæmis sammála þeim sem segja að það muni óhjákvæmilega hafa í för með sér að pestin blossi upp hérlendis ef fólki frá „grænum löndum“ verður hleypt hér inn aðgæslulaust. Ég hugsa meira að segja að ég muni ekki skipta um þessa skoðun — því þetta liggur bara alveg í augum uppi. En við látum okkur hafa það því þeir þurfa að græða sem eiga rútufyrirtæki og svoleiðis.“