Illugi Jökulsson greindi frá ótrúlegri sögu á Facebook-síðu sinni í dag. Hann segir frá því að þegar hann var rúmlega tvítugur hafi hann átt „flottasta leðurjakka í heimi“. Þetta hefur verið fyrir allnokkrum árum, en Illugi er fæddur árið 1960 og hefur því verið rúmlega tvítugur á níunda áratug síðustu aldar.
Þessi gríðarlega flotti leðurjakki átti síðan eftir að týnast er hann lánaði hann til Lundúna.
„Þegar ég var rúmlega tvítugur töffari átti ég flottasta leðurjakka í heimi. Svo lánaði ég hann til London og þar týndist hann.“
Það var síðan fyrir fimm árum þegar hið ótrúlega átti sér stað, en þá fann Illugi jakkann sinn aftur, eða að minnsta kosti alveg eins jakka.
„Fyrir fimm árum fann ég hann aftur í notaðri búð í Kaupmannahöfn og keypti hann vitaskuld strax. Hann leit að minnsta kosti nákvæmlega eins út. Fóðrið var hins vegar orðið lúið svo ég hef lítið notað hann,“
Illugi segist þó vera búinn að koma fóðurvandamálinu í dag, en hann setti jakkann í viðgerð og því er hann „óaðfinnanlegur á ný“.
„En fór fyrir nokkrum vikum með hann í Saumastofu Hassans á Hverfisgötu og nú er hann óaðfinnanlegur á ný.“