Illugi lenti í furðulegri uppákomu í sundi

Illugi Jökulsson lenti heldur betur í furðulegri uppákomu í sundi í morgun. Hann lýsir henni í Facebook færslu sem hefur vakið mikla athygli.

„Ég fór í sund rétt áðan og þegar ég lagði af stað úr sturtuklefanum út í laugina stóð maður við vask og spegil og var að byrja að raka sig. Hann var skegglaus, bara með hýjung síðan í gær."Góðan dag," sagði ég er ég gekk framhjá og hann kinkaði kolli um leið og hann mundaði raksköfuna,“ skrifar Illugi.

Hann hafi þá farið og synt sína kílómetra, dormað í heita pottinum og gufubaðinu.

„Gg allt tók þetta vel á annan klukkutíma og þegar ég var aftur á leið í sturtu stóð maðurinn enn við vaskinn og var að raka sig.

"Varst þú ekki ..." sagði ég spyrjandi, og hann kinkaði kolli: "Jú, það var ég." Ég lyfti brúnum eins og til að gefa honum kost á að skýra hvernig á þessu stóð, en hann sá enga ástæðu til þess og hélt bara áfram að raka sig.“