Rithöfundurinn Illugi Jökulsson vandar Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Katrínu Jakobsdóttur ekki kveðjurnar á Fésbókarsíðu sinni í gær. Tilefnið var Hjalteyrarmálið sem skekið hefur landann síðustu daga eftir að það komst í hámæli.
Illugi deilir frétt RÚV sem greinir frá því að hinir áðurnefndu ráðherrar hafi báðar vísað Hjalteyrarmálinu hvor á aðra. Katrín sagði það hlutverk Áslaugar að ákveða hvort rannsókn yrði framkvæmd á starfsemi vistheimilisins á Hjalteyri, en Áslaug sagði málið hins vegar á ábyrgð Katrínar. Þá vildi Ásmundur Einar Daðason ekkert með málið hafa.
Þessu tók Illugi ekki vel og jós úr skálum reiði sinnar. Hann sparar ekki stóru orðin: „Þetta er – fyrirgefið þó ég segi það – ömurlegt. Ömurlegt. Svo þetta eru hin réttu andlit ráðherranna,“ segir Illugi.
Hann bætir við: „Þetta fólk hefur engan áhuga, vísar frá sér, glottir og fer undan í flæmingi. Engar kosningar nærri, svo viðhorfið er bara: „Ekki á mínu borði, ekki á mínu borði!“ Það virðist ekki einu sinni kunna að skammast sín.“
Nokkrir Fésbókarvinir Illuga grípa aldeilis boltann á lofti og keppast við að hrauna yfir þær stöllur. Þórdís nokkur segir: „Ótrúlegt að hlusta á þessi þrjú, sem virtust varla nenna að svara fréttamönnum.“
Þá segir Kristín nokkur Heimisdóttir: „Ef örlað hefði á einhverri samkennd hefði þetta ekki verið eins skelfilega vandræðalegt!“
Til viðbótar segir Sigurður nokkur Einarsson: „Þetta er svakalega góð byrjun á nýju stjórnarsamstarfi.“