Illugi kemur grímuskyldunni til varnar: „Alls ekkert of góður til þess“

Grímuskyldan hefur farið misjafnlega ofan í landann. Margir sjá ekki tilganginn í því og finnst það óþarfa áróður að krefjast grímuskyldu í verslunum og víðar. Illugi Jökulsson, rithöfundur og samfélagsrýnir, skilur vel þessa gagnrýni:

„Ég unni frelsinu á við hvurn sem er, og mér finnst líka jafn hallærislegt og óþægilegt og öðrum að bera grímu,“ segir hann á Facebook. „En ef ég er beðinn að setja upp þessa pappírsgrímu enn um sinn meðan ég er í fjölmenni og innan um ókunnuga, þá finnst mér það ekki skerðing á persónulegu frelsi mínu. Mér finnst satt að segja að ég sé bara alls ekkert of góður til þess ef það gæti orðið til að vernda einhvern fyrir Covid-19 meðan hjarðónæmi er ekki komið til sögu og fullnægjandi lækning enn ekki fundin.“

Hann varpar svo fram kenningu:

„Getur annars verið að andstaða gegn grímunotkun hafi þá fyrst byrjað að vaxa þegar kom í ljós að með því að bera grímu, þá er maður ekki fyrst og fremst að verja sjálfan sig, heldur annað fólk?“

Rannveig Ernudóttir, varaborgarfulltrúi Pírata, tekur undir með honum og segir: „Ég held að það sé ansi mikið til í því já... sjálfri finnst mér ekkert hallærislegt að bera þær... stundum jafnvel smart hreinlega, en þær fara í taugarnar á mér, en ekki nóg til að ég geti ekki bara harkað af mér og tekið þátt í þessu verkefni þar til almennileg lausn er komin við þessu,“ segir hún og bætir við:

„Hins vegar er ég á því að það þurfi virkilega að horfast í augu við það hvað á að gera? Gengur þetta áfram að vera með stanslaust jójó á aðgerðum? Á spítalinn ekki að geta tekið við veiku fólki? Er það ekki tilgangur hans? Hvar er stuðningur yfirvalda með spítalanum?“