„Alltaf neyðarlegt þegar maður fer hjá sér fyrir framan sjónvarpið yfir billegum blekkingum stjórnmálamanna,“ segir Illugi Jökulsson rithöfundur og samfélagsrýnir.
Illugi vísar þarna í viðtal Kastljóssins í gærkvöldi við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um stjórnarskrármálið. Eins og kunnugt er fékk Katrín afhentar í vikunni rúmlega 43 þúsund undirskriftir þess efnis að Alþingi samþykki nýja stjórnarskrá.
Illugi segir að viðtalið við Katrínu hafi verið allt í lagi lengst af. „Hún er greinilega þeirrar skoðunar að ekki þurfi að fara eftir þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 og hún má auðvitað alveg hafa þá skoðun eins og aðrir,“ segir Illugi sem varð síðan nokkuð hugsi.
„En svo lýsti hún hvaða leið hún vildi fara, og allt í lagi með það líka, nema hvað þá sagði Einar Þorsteinsson, mjög eðlilega, að þetta væri nú ekki leiðin sem þau 43 þúsund, sem skrifuðu undir söfnunina núna, hefðu beðið um.“
Illugi segir að þá hafi Katrín vogað sér að segja að undirskriftirnar snúist um það að fólk vilji sjá breytingar á stjórnarskránni.
„Nei, Katrín! Rúmlega 43 þúsund skrifuðu ekki undir það. Þetta fólk skrifaði undir það - nákvæmlega það - að hin nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs ætti að taka gildi. Ekki annað. Undirskriftirnar snúast ekki um EINHVERJAR breytingar, og allra síst um hálfkákið þitt.
Ömurlegt að horfa upp á svona auma tilraun stjórnmálamanns til að eigna sér skoðanir og sannfæringu annarra,“ segir Illugi í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi en sem kunnugt er var Illugi kosinn í stjórnlagaráð á sínum tíma.