Illugi gefur Willum á baukinn: „Gæti sennilega enginn annar en Framsóknarmaður búið til svona bull“

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson lætur Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra heyra það í færslu sem birtust á Facebook-síðu hans í dag. Málið varðar nýja hugmynd Willums að afglæpavæða ólögleg fíkniefni, en bara fyrir „veikasta hópinn“

Illugi telur þessar hugmyndir undarlegar, óréttlátar og heimskulegar.

„Fyrirætlanir Willums Þórs Þórssonar um að hætta að refsa „veikasta hópnum“ fyrir að hafa dóp í fórum sínum en halda áfram að refsa öðrum, þær eru svo undarlegar, óréttlátar og umfram allt HEIMSKULEGAR að mann setur hljóðan.“

Þetta skrifar Illugi, sem hættir þó ekki þar, en hann bætir við að það séu fyrst og fremst Framsóknarmenn sem komi með hugmyndir sem þessa.

„Það gæti sennilega enginn annar en Framsóknarmaður búið til svona bull. Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“