Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson kveðst vera undrandi á viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við sóttvarnalagabroti Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra.
„Ég hef ekki verið aðdáandi þessarar ríkisstjórnar fram að þessu. Það er meira að segja nokkuð langt frá því, eins og ég vona að ekki hafi farið milli mála,“ skrifar Illugi á Facebook síðu sinni. Hingað til hafi hann þó fúslega viðurkennt að stjórninni hafi tekist nokkuð vel upp í sóttvarnarvörnum.
„En nú er sá orðstír ónýtur líka, og þær Svandís og Katrín láta fallast á sverð sín til þess eins að vernda Bjarna Benediktsson og partístand hans,“ skrifar Illugi. „Skrýtin eru örlögin.“
Boðskapur frelsarans gildir ekki í ríkistjórn Íslands
Illugi bendir því næst á að sætu aðrir í stjórninni hefði atburðarásin verið önnur. „Ef Logi Einarsson væri forsætisráðherra í stjórn Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fjármálaráðherra hefði hagað sér eins og Bjarni Benediktsson gerði á Þorláksmessu, þá hefðu stjórnarandstæðingarnir Katrín Jakobsdóttir og gjörvallur Sjálfstæðisflokkurinn heimtað tafarlausa afsögn hennar,“ útskýrir Illugi.
„Það vitum við og þarf ekkert að orðlengja um. Og þar með vitum við núna – ef við höfum ekki gert okkur grein fyrir því áður – að í íslenskri pólitík ríkir algjör afstæðishyggja og prinsip eru engin.“
Það eigi í það minnsta ekki um þá stjórnmálaflokka sem fara með völdin. „Sá sem fæddist að sögn á jólum, hann sagði: „Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Þetta gildir ekki í ríkisstjórn Íslands.“
Ég hef ekki verið aðdáandi þessarar ríkisstjórnar fram að þessu. Það er meira að segja nokkuð langt frá því, eins og ég...
Posted by Illugi Jökulsson on Friday, December 25, 2020